Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 17:31
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Andy Cole á leið til Nottingham Forest (Staðfest)
Andy Cole, fyrrum framherji Manchester United og Newcastle, er á leið til Nottingham Forest.

Þessi 36 ára gamli markaskorari mun skrifa undir eins árs samning við Forest í næstu viku.

Cole var látinn fara frá Sunderland í sumar en á síðasta tímabili var hann í láni hjá Burnley.

Cole verður fjórði leikmaðurinn sem Nottingham Forest fær í sumar en félagið vann sér sæti í ensku Championship deildinni í vor.

Colin Calderwood knattspyrnustjóri félagsins hafði fyrr í sumar klófest Robert Earnshaw, Paul Anderson og Guy Moussi.
Slapp
banner