Einn leikur fór fram í 2. deild karla í kvöld þar sem ÍR lagði Aftureldingu í toppslag deildarinnar með tveimur mörkum gegn einu.
Tómas Joð Þorsteinsson kom Aftureldingu yfir í fyrri hálfleik en Elías Ingi Árnason jafnaði metin með marki úr vítaspyrnu. Það var svo Árni Freyr Guðnason sem skoraði sigurmarkið um miðjan síðari hálfleikinn.
Nánari umfjöllun um leikinn, myndir og viðtöl koma hér á Fótbolta.net síðar í kvöld.
Afturelding 1-2 ÍR
1-0 Tómas Joð Þorsteinsson
1-1 Elías Ingi Árnason
1-2 Árni Freyr Guðnason





