Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 23:59
Hafliði Breiðfjörð
Umfjöllun: ÍR vann toppslaginn í Mosfellsbænum
ÍR-ingar fagna sigurmarkinu sem Árni Freyr Guðnason skoraði.
ÍR-ingar fagna sigurmarkinu sem Árni Freyr Guðnason skoraði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Árni Freyr skorar sigurmarkið í leiknum.
Árni Freyr skorar sigurmarkið í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Baldvin Jón Hallgrímsson kemur boltanum undan áður en Paul Clapson nær til hans.
Baldvin Jón Hallgrímsson kemur boltanum undan áður en Paul Clapson nær til hans.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afturelding 1-2 ÍR
1-0 Tómas Joð Þorsteinsson ('6)
1-1 Elías Ingi Árnason ('14)
1-2 Árni Freyr Guðnason ('66)

ÍR-ingar eru komnir með þriggja stiga forskot á toppi 2. deildar eftir að hafa lagt Aftureldingu með tveimur mörkum gegn einu í toppslasg deildarinnar í Mosfellsbænum í kvöld.

Fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum og jöfn að markatölu svo ljóst var að búast mátti við alvöru fótboltaleik tveggja liða og það gekk heldur betur eftir og þrjú mörk litu dagsins ljós og spennan var orðin óbærileg síðasta stundarfjórðunginn.

Heimamenn í Aftureldingu vantaði kantmanninn öfluga Rannver Sigurjónsson sem hefur skorað fimm mörk fyrir liðið í átta leikjum því hann tók út leikbann og hinum megin vantaði ÍR Þorstein V. Einarsson markvörð sinn sem var meiddur og því lék hinn 18 ára gamli Bjarki Þór Steinarsson í markinu annan leikinn í röð og sinna annan meistaraflokksleik á ferlinum.

Leikurinn byrjaði nokkuð fjörlega og strax eftir sex mínútna leik höfðu heimamenn í Aftureldingu náð forystunni. Eftir klafs í vítateignum barst boltinn út til vinstri á Tómas Joð Þorsteinsson sem kom aðvífandi og þrumaði boltanum á markið, í þverslána og í netið, óverjandi fyrir Bjarka í markinu og staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn.

Forskotið stóð þó ekki lengi því eftir stundarfjórðung höfðu gestirnir jafnað metin. Guðfinnur Ómarsson var þá með boltann á vinstri kanti út við endalínu, sendi boltann fyrir þar sem Karl Brynjar Björnsson skallaði boltann fyrir fætur Árna Guðnasonar sem reyndi að spyrna að marki en boltinn fór í hönd varnarmanns Aftureldingar og vítaspyrna var dæmd.

Markahrókurinn Elías Ingi Árnason fór á punktinn og skoraði örugglega framhjá Kjartani Páli Þórarinssyni markverði Aftureldingar og staðan því orðin 1-1.

Liðin sóttu á báða bóga eftir þetta og ljóst að þarna mættust lið af svipuðum styrkleika. Hættulegasta færið það sem eftir lifði af fyrri hálfleiknum fékk Magnús Einarsson leikmaður Aftureldingar eftir hornspyrnu undir lok fyrri hálfleiks en skot hans varði Bjarki í markinu vel og í kjölfarið hreinsuðu varnarmenn ÍR frá og þrátt fyrir stífa pressu héldu þeir og staðan í hálfleik 1-1.

Litlu munaði að Afturelding næði forystunni í leiknum eftir um klukkutíma leik. Tómas Joð átti þá góða sendingu frá vinstri kantinum til baka á Sigurð Helga Harðarsson sem þrumaði boltanum í þverslána og niður og einhverjir Aftureldingarmenn töldu að boltinn væri inni en því var Halldór Breiðfjörð dómari leiksins ekki sammála.

Árni Freyr Guðnason var mikilvægur í sóknarleik ÍR-inga og átti nokkur skot að marki sem fóru rétt framhjá og lagði upp færi á samherja sína. Hann átti góða stungusendingu á Elías Inga Árnason tveimur mínútum eftir þetta færi Aftureldingar manna sem hér áður var tíundað. Elías komst einn innfyrir vörn Aftureldingar en skot hans var slakt og ekkert verð úr því.

Það var svo um miðjan síðari hálfleikinn að ÍR-ingar komust yfir. Guðfinnur Ómarsson átti þá frábæra sendingu á Árna Frey Guðnason sem stefndi beint á markið með John Andrews miðvörð Aftureldingar fyrir framan sig. Árni Freyr fór auðveldlega framhjá Íranum og skaut bogaskoti á markið og boltinn söng í netinu við mikinn fögnuð ÍR-inga.

Eftir þetta bökkuðu ÍR-ingar fullmikið og mikil spenna hljóp í leikinn enda sóttu heimamenn í Aftureldingu látlaust að marki þeirra. Nokkrum sinnum skapaðist hætta í teignum en Aftureldingarmönnum tókst ekki að skora. Í eitt skiptið heimtuðu þeir vítaspyrnu eftir að Tómas Joð féll í teignum en ekkert var dæmt og hættulegasta færið fékk varamaðurinn Arnar Gauti Óskarsson eftir góða sendingu Paul Clapson en Bjarki Þór varði.

Lokatölur 1-2 fyrir gestina í ÍR í miklum spennuleik. Framherjinn Paul Clapson hjá Aftureldingu er markahæsti leikmaður deildarinnar með tíu mörk. Lítið sem ekkert sást til hans í leiknum í dag og líklega geta ÍR-ingar helst þakkað það frábærum varnarleik Baldvins J. Hallgrímssonar sem tók hann alveg út úr leiknum.

Afturelding: Kjartan Páll Þórarinsson, Gunnar Steinn Ásgeirsson (Hákon Helgi Bjarnason '77), Gestur Ingi Harðarson, Magnús Einarsson, John Andrews, Jón Fannar Magnússon (Steinar Ragnarsson '71), Albert Ásvaldsson (Arnar Gauti Óskarsson '65), Sigurður Helgi Harðarson, Tómas Joð Þorsteinsson, Sævar Alexandersson, Paul Clapson.
Ónotaðir varamenn: Mates Grobovsek, Torfi Geir Hilmarsson.

ÍR: Bjarki Þór Steinarsson, Tinni Kári Jóhannsesson, Tómas Agnarsson, Baldvin Jón Hallgrímsson, Karl Brynjar Björnsson, Elvar L. Guðjónsson, Guðfinnur Ómarsson (Jón Hafsteinn Jóhannsson '71), Árni Freyr Guðnason, Elías Ingi Árnason, Erlingur Jack Guðmundsson (Axel Kári Vignisson '79), Trausti B. Ríkharðsson.
Ónotaðir varamenn: Andri M. Jónsson, Eyjólfur Eyjólfsson, Hrannar Karlsson.

Aðstæður: Leikið á gervigrasi í Mosfellsbæ í 15 stiga hita og logni en skýjað.
Maður leiksins: Baldvin Jón Hallgrímsson, ÍR
Áhorfendur: Á þriðja hundraðið.
Dómari: Halldór Breiðfjörð
Slapp
banner
banner