Guðlaugur Baldursson þjálfari 2. deildarliðs ÍR var í skýjunum eftir 1-2 sigur liðsins á Aftureldingu í toppslag deildarinnar nú í kvöld en með sigrinum náði ÍR þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar.
,,Ég er alveg rosalega ánægður," sagði Guðlaugur í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn. ,,Við erum að mæta hérna frábæru liði á þeirra heimavelli á gervigrasinu og það hafa orðið smá skakkaföll í liðinu hjá okkur."
,,Það er alveg frábært að sjá hversu flott samheldnin er hjá mönnum hvort sem þeir eru að koma inn í liðið núna eða af bekknum og það skilar sér náttúrulega í þvílíkum karakter."
,,Við lendum undir enn einn ganginn, sem við þurfum að fara að laga, en komum til baka og kláruðum leikinn og það er gríðarlegur karakter. Þetta var ekki alltaf flottasta spilamennskan, hvorki hjá okkur né þeim, það var mikil barátta og mikið í húfi, svo við erum rosalega glaðir."
Gríðarleg taugaspenna var síðasta stundarfjórðunginn í leiknum þegar Aftureldingar menn sóttu látlaust. ,,Við duttum alltof aftarlega, það var ósjálfrátt, við erum með forystuna og berum mikla virðingu fyrir mótherjanum og þeir færa sig alltaf framar og framar," sagði Guðlaugur.
,,Síðasta korterið fannst mér þeir samt ekki skapa okkur nein veruleg vandræði. En þeir áttu skot í slá áður en við skoruðum annað markið svo það er stutt á milli feigs og ófeigs í þessu."
Þarna mættust liðin sem voru efst og jöfn í toppsætum deildarinnar fyrir leikinn, jöfn að stigum og markatölu en ÍR hafði toppsætið fyrir leik á fleiri skoruðum mörkum. En eru þetta liðin tvö sem fara upp í 1. deildina í haust?
,,Ég ætla nú ekki að afskrifa Víði eða þessi lið sem eru í humátt á eftir okkur, alls ekki. Það er gott fótboltalið og það er mikið eftir af þessu," sagði Guðlaugur.
,,En þessi sigur gefur okkur sannarlega byr undir báða vængi og við erum virkilega glaðir og ætlum að halda áfram að hala inn stig til að komast upp, þetta er ekkert búið. Okkur líður vel í dag en eftir helgi þurfum við að fara að undirbúa okkur undir leik gegn Austfirðingunum á föstudaginn."
,,Nú erum við komnir með örlítið andrými, það hefði verið erfitt að tapa þessum leik en það er jafnsætt að vinna hann. En við erum ekki búnir að vinna neitt með þessu, við unnum leikinn og fengum stigin þrjú sem voru í boði og það er virkilega glæsilegt, við erum enn ósigraðir og erum stoltir af því."



