Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 05. júlí 2008 00:24
Gísli Þórarinsson
1.deild umfjöllun: Mikilvægur sigur Leiknis á Njarðvík
Jakob Spangsberg skoraði tvö í kvöld.
Jakob Spangsberg skoraði tvö í kvöld.
Mynd: Leiknir.com - Matthías Ægisson
Mynd: Leiknir.com - Matthías Ægisson
Rafn Markús Vilbergsson fékk að líta rauða spjaldið.
Rafn Markús Vilbergsson fékk að líta rauða spjaldið.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Jón Örvar Arason
Njarðvík 1-2 Leiknir:
0-1 Jakob Spangsberg ('4, víti)
0-2 Jakob Spangsberg ('12)
Rauð spjöld: Árni Ármannsson ('77), Rafn Markús Vilbergsson ('83) (Báðir Njarðvík)

Það var stórleikur í fallbaráttunni á Njarðtaksvelli í Njarðvík þegar Leiknismenn komu í heimsókn. Bæði lið í bullandi botnbaráttu og 3 stig lífsspursmál fyrir tilverurétti sínum í deildinni.

Það tók Leikni einungis 3 mínútur að skora þegar að vítaspyrna var dæmd eftir að boltinn hafði farið í hendi varnarmanns Njarðvíkur. Jakob Spangsberg steig á punktinn og setti boltann neðst í vinstra hornið en markvörður Njarðvíkur Ingvar Jónsson náði að slá til knattarins en inn fór boltinn. Leiknismenn komnir með forystuna 0 – 1.

Á 8. mínútu fékk Frans Elvarsson háa sendingu inní teig Leiknismanna, Frans skallaði boltann á Guðna Erlendsson sem beið átekta fyrir utan teig gestanna og tók boltann viðstöðulaust á lofti en skotið framhjá markinu.

Á 11. mínútu var brotið á Ísaki Þórðarssyni á miðjum vallarhelmingi Leiknismanna, Guðni Erlendsson tók spyrnuna en sending hans á fjærstöng var of há og boltinn framhjá markinu.

Leiknismenn bættu við öðru marki sínu á 13. mínútu þegar Guðlaugur Axelsson fór illa með varnarmenn Njarðvíkinga á hægri kantinum, komst að endamörkum og gaf fastan bolta fyrir markið og þar var enginn annar en Jakob Spangsberg mættur og skallaði boltann örugglega í mark heimamanna, Jakob með sitt annað mark og staða Leiknismanna vænleg.

Bæði lið skiptust á að sækja án þess þó að skapa sér einhver teljandi færi næstu 13 mínúturnar.

Njarðvíkingar fengu hornspyrnu á 26. mínútu sem Kristinn Agnarsson tók, fín spyrnan fór í gegnum alla þvöguna og útaf í markspyrnu.

Tveimur mínútum síðar brutust Leiknismenn upp hægri kantinn, Njarðvíkingar hreinsuðu fyrirgjöfina á vinstri kant þar sem Aron Daníelsson var mættur, Aron snéri baki í mark Njarðvíkinga, snéri sér við á punktinum og skildi 2 varnarmenn Njarðvíkurliðsins eftir en var óheppinn með skot sitt sem fór framhjá fjærstönginni. Ingvar Jónsson markvörður var ekki ánægður með varnarvinnu sinna manna og lét þá heyra það.

Njarðvíkingar fengu svo aukaspyrnu 5 metrum fyrir utan teig Leiknismanna vinstra megin á 45. mínútu, Ísak Þórðarsson steig upp en skot hans niðri í fjær hornið var varið af Vali Gunnarssyni sem gerði vel í öllu sem að honum kom.

Njarðvíkingar voru ekki sjón að sjá þegar flautað var til hálfleiks en gestirnir undu vel við tveggja marka forystu sína.

Líkt og í fyrri hálfleik voru Leiknismenn líklegari til að bæta við forystu sína en Njarðvíkingar að minnka muninn fyrstu mínútur síðari hálfleiks.

Ísak Þórðarsson vann vel fram á við og setti pressu á markmann og varnarmenn Leiknismanna en það var til einskis þar sem samherjar hans bökkuðu hann ekki upp og Leiknismenn ekki í teljandi vandræðum með að spila boltanum fram á við.

Albert Arason tók hornspyrnu fyrir Njarðvíkinga á 67. mínútu sem Ísak Þórðarsson skallaði fast að marki gestanna og mátti Valur Gunnarsson hafa sig allan við að slá boltann yfir.

Tveimur mínútun síðar fengu Njarðvíkingar auka spyrnu á vinstri kanti við miðju vallarhelmings Leiknismanna, Guðni Erlendsson sendi knöttinn inn í teiginn en skalli Frans Elvarssonar fór yfir mark gestanna.

Leiknismenn settu í gírinn aftur eftir að Njarðvíkingar gerðu sig líklega til að komast inn í leikinn og uppskáru hornspyrnu á 72. mínútu, boltinn fór á nærstöng þar sem Guðlaugur Axelsson kom aðvífandi og skallaði að marki heimamanna en Ingvar gerði vel í að slá knöttinn frá marki, upphófst mikill darraða dans í teig heimamanna sem að lokum náðu að hreinsa boltann frá.

Á 77. mínútu fékk Árni Ármannsson í liði Njarðvíkur að líta sitt annað gula spjald og rautt eftir tæklingu á Leiknismanni. Njarðvíkingar orðnir einum færri, eitthvað sem þeir máttu síst við.

Á 80. mínútu voru Leiknismenn óheppnir að skora ekki, Aron Daníelsson sótti upp að endamörkum hægra megin, gaf boltann út á Guðlaug Axelsson sem lét vaða á markið, boltinn stefndi framhjá en þar var Jakob mættur en hann fór illa með dauðafæri og sendi boltann útaf við fjærstöng.

Njarðvíkingar misstu annan mann útaf á 83. mínútu þegar að Rafn Vilbergsson fékk beint rautt eftir að brotið hafði verið á honum, hægra megin við miðju vallarins. Rafn virtist flækja sig í Leiknismanninn eftir brotið og féll við það aftur. Dómari leiksins sá hinsvegar eitthvað athugavert og gaf Rafni beint rautt.

Leikurinn var í raun og veru búinn á þessum tímapunkti þar sem Njarðvíkingar höfðu ekki verið að skapa sér nein teljandi færi allan leikinn. Tveimur mönnum færri reyndu þeir að halda markatölunni óbreyttri. Vel studdir af stuðningsmönnum sínum reyndu Leiknismenn að bæta við 3 markinu en vörn Njarðvíkur hélt og lokatölur 0 – 2 gestunum í vil.

Leiknismenn áttu sigurinn fyllilega skilinn og ber að hrósa stuðningsmönnum Leiknis sem létu vel í sér heyra allan leikinn. Hver leikur fyrir Njarðvíkinga er hrein og bein niðurtalning í 2.deild að ári ef ekki verður breyting á hugarfari hjá leikmönnum, allavega miðað við spilamennsku kvöldsins.

Njarðvík; Ingvar Jónsson, Árni Þór Ármannsson, Kristinn Björnsson, Gestur Gylfason, Einar Valur Árnason, Guðni Erlendsson (Aron Már Smárason) Albert Högni Arason, Kristinn Örn Agnarsson (Rafn Vilbergsson) Ísak Örn Þórðarsson (Vignir Benediktsson) Frans Elvarsson, Alexander Magnússon.
Ónotaðir varamenn; Þorsteinn Atli Georgsson, Almar Elí Færseth.

Leiknir; Valur Gunnarsson, Rune Koertz, Halldór Kristinn Halldórsson, Guðlaugur Þór Axelsson, Vigfús Arnar Jósepsson, Jakob Jensen (Einar Örn Einarsson) Aron Daníelsson, Sævar Ólafsson, Sigþór Snorrason (Einar Pétursson), Kári Einarsson (Þór Ólafsson) Fannar Arnarsson.
Ónotaðir varamenn; Ólafur Jónsson, Elínbergur Sveinsson.
Slapp
banner