Ólafur Ólafsson þjálfari Aftureldingar var að vonum vonsvikinn eftir 1-2 tap liðsins á ÍR í toppslag 2. deildar í kvöld. Hans menn höfðu náð forystunni í leiknum en misstu hana niður í tap áður en yfir lauk.
,,Þetta var súrt en mér fannst við alveg fá tækifæri, engin spurning. Við áttum alveg í þessum leik og vorum allan tímann inni í þessu, en svona er þetta, ef við klárum ekki færin þá fáum við ekki þrjú stig, það er alveg ljóst.," sagði Ólafur í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn í kvöld.
Framherjinn Paul Clapson hafði fyrir leikinn skorað tíu mörk í deildinni fyrir Aftureldingu en ekkert sást til hans í leiknum í kvöld enda virstust varnarmenn ÍR hafa kortlagt hann og stoppað hann af.
,,Þeir stoppa Paul og við náum ekki að losa hann undan þeirri gæslu sem hann var í," sagði Ólafur.
,,Þá hefðum við mátt stíga upp annars staðar og einhverjir aðrir hefðu mátt stíga upp og setja hann. Það er ekki hægt að treysta á hann endalaust. Við förum bara með þá á æfingu eftir helgina og vinnum í því hvernig við náum að losa hann. Liðin eru farin að setja einn og tvo og þrjá á hann og það er erfitt."
,,Menn eru farnir að loka á Paul og við söknuðum Ranna [Rannver Sigurjónsson] úr sóknarleiknum og það losar um Paul líka um leið þegar hann er með. En það á alltaf að koma maður í manns stað, það er engin spurning."
Mikil taugaspenna var síðasta korterið í leiknum og heimmenn sóttu þá stíft en fóru illa með sóknaraðgerðir sínar og náðu ekki að skora mark.
,,Við hefðum mátt vera aðeins rólegri og skynsamari. Það var nægur tími til að jafna þennan leik. Við höfum ekki oft lent undir í sumar og það kom svolítið reynsluleysi í ljós þar, að ná ekki að vera skynsamir og bíða eftir rétta tækifærinu."
,,Þetta var stórleikur í deildinni og við ætluðum okkur þrjú stig eins og þeir en þeir fengu þau í kvöld. Það er samt nóg eftir af þessu móti og við erum enn við toppinn og sitjum enn í öðru sæti eftir þennan leik. Við ætlum okkur að sækja á 1. sætið og halda öðru sætinu. "
Paul Clapson hefur skorað grimmt í deildinni í sumar eins og áður sagði og vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína á sinni fyrstu leiktíð. Að lokum spurðum við Ólaf hvort lið í efri deildum hafi sýnt honum áhuga nú þegar styttist í að félagaskiptaglugginn opni hér á landi.
,,Nei, það hefur ekki verið neitt og hann er ekkert á förum frá okkur. Hann verður hjá okkur og klárar tímabilið. Það er alveg á kristaltæru," sagði Ólafur að lokum.


