Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   lau 05. júlí 2008 00:28
Gísli Þórarinsson
Helgi Arnarson: Dauði og djöfull framundan
Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Njarðvíkingar töpuðu mikilvægum stigum á heimavelli í kvöld í botnbaráttunni. Aðspurður um mikilvægi leiksins hafði Helgi þetta að segja:

,,Þetta var klárlega úrslitaleikur, við lögðum þetta upp þannig að þetta væri klár úrslitaleikur og núna sitjum við bara á botninum og það er bara dauði og djöfull framundan."

Leiknismenn fengu vítapsyrnu snemma leiks sem Jakob Spangsberg skoraði úr.

,,Ég hefði helst ekki viljað gagnrýna dómarana en hann hefði mátt vera með sömu röntgen augu í síðari hálfleik þegar að hann fór í hendi Leiknismanns inní teig en það var óneitanlega kjaftshögg að fá mark á okkur á 4. mínútu og það breytti talsverðu miklu hvernig við lögðum leikinn fyrirfram og að fá á sig mark þá misstu menn hausinn og skipulagið fór aðeins forgörðum, við fengum mark á okkur 10 mínútum síðar eftir fyrirgjöf af hægri sem sló okkur heldur betur af laginu, eftir 15 mínútur vorum við komnir tveimur mörkum undir og það var erfitt að rífa sig á fætur eftir það."

Leiknismenn voru mun ákveðnari í sínum aðgerðum og það var eins og það var enginn úr Njarðvíkurliðinu sem gat staðið upp og tekið af skarið.

,,Ég held að það hefði breytt miklu ef að við hefðum ekki fengið á okkur þetta mark í upphafi, það hefði skipt soldið miklu en þrátt fyrir það þá er ég óánægður með það að við skyldum ekki rífa okkur betur upp og við töpuðum þessum leik í fyrri hálfleik."

,,Seinni hálfleikurinn var eins og þú sást, fór í vitleysu, við enduðum leikinn tveimur færri og vorum bara að lifa af í síðari hálfleik og ég þakka fyrir að hafa ekki fengið á okkur mark í þeirri stöðu. Ég er svekktur með það að við erum að spila miklu betri leik gegn sterkari liðunum virðist vera og síðan í þessum leikjum sem við þurfum virkilega að vinna, Leikni, KS/Leiftur þar erum við að tapa öllum stigum sem eru í boði og þess vegna sitjum við á botninum, það er bara þannig."


Njarðvíkingar eiga næst útileik gegn Þór Akureyri, aðspurður hvernig sá leikur legðist í sig án tveggja leikmanna sinna sem fengu brottvikningu í kvöld svaraði Helgi;

,,,Hann leggst í sjálfu sér ekkert illa í mig, ég hefði viljað að fá 6 stig í þessum 2 leikjum, þessum í kvöld og leiknum fyrir norðan, og það eru alveg hreinar línur að við verðum að gefa allt í þennan leik fyrir norðan, við leggjum allt í sölurnar,það kemur maður í manns stað ég kvíði því ekkert. Ég er óneitanlega mjög svekktur í dag eftir þetta hlutskipti en við leggjum ekki árar í bát á þessarri stundu, það er alveg klárt mál," sgaði Helgi við Fótbolta.net.
Slapp