Garðar Gunnar Ásgeirsson, þjálfari Leiknis R., var að vonum ánægður eftir leik sinna manna gegn Njarðvík í kvöld og að hafa tekið öll þrjú stigin sem voru í boði
,,Við vorum búnir að bíða lengi eftir þessu og og að ná í þennan sigur, þetta kannski svona aðeins ýtir okkur upp af botninum en við erum samt ansi nálægt honum ennþá," sagði Garðar við Fótbolta.net að leik loknum.
Leiknismenn mættu dýrvitlausir til leiks og voru mun betri aðilinn mest allan leikinn ,,Já ég vil meina það, við vorum miklu betri og sterkari allan leikinn, samanber þeir eiga einn skalla allan leikinn og það er eiginlega það eina sem að þeir sköpuðu sér, en það kom ekki neitt annað til greina en sigur því jafntefli hefði ekki gefið okkur neitt í þessari baráttu á botninum."
Þið sýnduð það í kvöld að þið eruð klárlega ekki lið sem má vanmeta, hvernig leggst baráttan framundan í þig?
,,Þótt ótrúlegt megi virðast leggjast allir leikir vel í mig, ég verð bara að segja það að við erum með fínt lið og við eigum að vera með miklu fleiri stig miðað við hvernig leikir hafa verið að spilast, Þannig að við getum bara kennt okkur sjálfum um í hvernig stöðu við erum. Ég held að það sé ekkert lið sem geti bókað sigur á móti okkur," sagði Garðar.



