Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 05. júlí 2008 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Didier Digard til Middlesbrough (Staðfest)
Middlesbrough hefur keypt miðjumanninn Didier Drigard frá Paris St-Germain á fjórar milljónir punda.

Digard, sem er 21 árs gamall, hefur staðist læknisskoðun og skrifað undir fjögurra ára samninng við Boro.

Hann hafði áður verið dæmdur í leikbann hjá franska félaginu eftir að hann sagði félagið vera að koma í veg fyrir félagaskiptin til Boro.

,,Didier er varnarsinnaður miðjumaður sem er góður íþróttamaður og góður tæklari," sagði Gareth Southgate stjóri Middlesbrough við heimasíðu félagsins.

Southgate hefur verið duglegur á leikmannamarkaðnum undanfarna daga því hann keypti einnig framherjann Marvin Emnes frá Sparta Rotterdam nú fyrir helgi.
Slapp
banner
banner