Heimild: BBC
Liverpool á í viðræðum við brasilíska markvörðinn Diego Cavialieri en hann gæti komið til félagsins á þrjár milljónir punda.
Cavialieri, sem er 26 ára gamall, leikur með Palmeiras en hann er nú farinn til Englands þar sem hann mun ræða við Liverpool.
,,Palmeiras hefur leyft Diego að fara og ræða við Liverpool. Það eru hins vegar ennþá hlutir sem á eftir að ganga frá," sagði Juninho Parmigiani umboðsmaður Cavialieri.
Liverpool hefur gengið frá kaupum á bakvörðunum Andrea Dossena og Philipp Degen í sumar en Cavialieri gæti orðið þriðji nýji leikmaðurinn hjá félaginu.
Hann þarf hins vegar fyrst að semja við Liverpool og fá atvinnuleyfi ef félagaskiptin eiga að ganga í gegn.


