Heimild: Reuters
Vicente del Bosque hefur átt í viðræðum við spænska knattspyrnusambandið um að taka við Evrópumeisturum Spánverja.
Del Bosque stýrði Real Madrid tvívegis til sigurs í Meistaradeildinni og tvívegis til sigurs í spænsku deildinni á sínum tíma.
Viðræður hafa gengið vel og búist er við að hann verði ráðinn í starfið á næstu tveimur vikum.
Luis Aragones landsliðsþjálfari Spánverja, sem verður sjötugur síðar í mánuðinum, hætti með liðið eftir EM en það var fyrsti sigur Spánverja á stórmóti í 44 ár.
Hann segir spænska knattspyrnusambandið ekki hafa boðið sér nýjan samning en þrátt fyrir það er engan bilbug að finna á Aragones því hann er að taka við stjórnartaumunum hjá tyrkneska félaginu Fenerbahce.





