Heimild: AFP
Atletico Madrid keypt í gær franska markvörðinn Gregory Coupet frá Lyon á 1,5 milljónir evra.
Þessi 35 ára gamli leikmaður átti að skrifa undir í síðustu viku en það frestaðist þar sem félögin náðu ekki strax saman um kaupverð.
Coupet var samningsbundinn Lyon til 2010 en hafði klásúlu í samningi sínum að hann mætti yfirgefa félagið fyrir þrjár milljónir punda.
Atletico Madrid náði hins vegar að fá verðið niður í 1,5 milljónir evra en 500 þúsund evrur bætast við ef Copuet hjálpar liðinu að komast í Meistaradeildina á næstu tveimur leiktíðum.
Coupet hefur unnið franska meistaratitilinn í sjö ár í röð með Lyon en hann hefur einnig reynslu úr Meistaradeildinni með liðinu.




