Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 05. júlí 2008 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Steven Taylor gerir nýjan samning við Newcastle
Steven Taylor, varnarmaðurinn ungi, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Newcastle United.

Þessi ætti að binda enda á sögusagnir um framtíð þessa 22 ára gamla leikmanns.

Taylor er yfirliði enska U21 árs landsliðsins en hann lék sinn fyrsta leik með Newcastle árið 2004.

Hann hafði áður lýst yfir áhuga sínum á að vera áfram hjá Newcastle og nú hefur hann landað nýjum samningi upp á um það bil 35 þúsund pund í vikulaun.

,,Ég er hæstánægður með að hafa skrifað undir nýjan samning. Newcastle United er liðið í mínum heimabæ og var alltaf eina liðið sem ég vildi spila fyrir," sagði Taylor við heimasíðu Newcastle.
Slapp
banner
banner