Heimild: Sky
Hollenska stórliðið Ajax Amsterdam hafa fest kaup á sóknarmanninum Miralem Sulejmani frá Heerenveen.
Liðin hafa verið í viðræðum varðandi kaupverð á leikmanninum undanfarið, og endaði sú niðurstaða með því að Ajax borgaði metfé félagsins fyrir Sulejmani, eða um 13 milljónir punda.
Áður var það einnig leikmaður frá Heerenveen sem sló met Ajax, en það var enginn annar en Klaas-Jan Huntelaar, fyrir um 7 milljónir punda og sá framherji átti svo sannarlega eftir að sanna sig.
Sulejmani, sem er 19 ára gamall er talinn einn af bestu ungstirnum heims um þessar mundir, en á frábæru tímabili með Heerenveen að þakka fyrir það þegar hann skoraði 16 mörk í hollensku deildinni.
Hann fékk Johan Cruyff verðlaunin fyrir hæfileikar ársins í deildinni, og lék einnig sinn fyrsta landsleik fyrir Serbíu á þessu ári.



