Heimild: The Daily Mail
Enski landsliðsmaðurinn Peter Crouch mun ganga til liðs við Portsmouth á næstunni ef marka enska miðilinn The Daily Mail.
Fram kemur á heimsíðu miðilsins að Liverpool hefur samþykkt tíu milljóna punda tilboð Portsmouth í sóknarmanninn og verður sá peningur notaður til þess að fjármagna kaup á öðrum enskum landsliðsmanni, Gareth Barry.
Þrátt fyrir áhuga Tottenham vill Crouch aðeins yfirgefa Anfield til þess að færa sig yfir á Fratton Park og nú lítur allt út fyrir að honum verður að ósk sinni.
Auk Crouch er talið líklegt að Xabi Alonso yfirgefi Liverpool og fari til ítalska félagsins Juventus fyrir 15 milljónir punda.
Þá mun Rafa Benitez einnig halda áfram að lokka til sín írska sóknarmanninn Robbie Keane frá Tottenham og þá kemur einnig fram á Daily Mail að ísraelski landsliðmaðurinn Yossi Benayoun hafi hafnað Ajax til þess að vera áfram í Bítlaborginni.




