Heimild: Reuters
Brasilíska liðið Fluminense töpuðu úrslitaleik Libertadores bikarnum sem haldinn er í Suður-Ameríku fyrir liði LDU sem er frá Ekvador, en erkióvinir Fluminense gerðu grín að þeim eftir leikinn.
Lið Fluminense hafði betur í einvíginu gegn LDU, en þeir unnu fyrri leikinn 3-1 í Brasilíu, en töpuðu svo þeim síðari með sömu markatölu og endaði með því að leikurinn fór í vítaspyrnukeppni þar sem LDU hafði betur og sigraði keppnina.
Thiago Neves, lykilleikmaður Fluminense sem skoraði þrennu í fyrri leiknum varð brjálaður eftir að leikmenn erkióvinana í Flamengo buðu upp á brandara á opinni æfingu félagsins með því að kalla nöfn leikmanna LDU.
Neves man þó að Flamengo datt út á niðurlægjandi hátt úr þessari keppni í annarri umferð þegar liðið tapaði 3-0 á heimavelli fyrir América frá Mexíkó, eftir að hafa unnið á útivelli 4-2.
,,Þeir gerðu lítið úr andstæðingum sínum og féllu úr leik. Bara útaf því að þeir komust ekki í úrslitin þá koma þeir með einhverja asnalega brandara," sagði Neves.
Renato Portaluppi, þjálfari Fluminense sagði þetta barnalega hegðun frá Flamengo og að slíkt hefðu hans leikmenn ekki gert þegar Flamengo datt úr keppni.
,,Þegar þeir féllu úr keppni fyrir América þá gerði enginn grín að þeim. Þessir leikmenn þurfa að muna að samningar þeirra eru ekki eilífðir, og að í framtíðinni þá gætu einhverjir af þeim komið til Fluminense," sagði Portaluppi.
Miðvallarleikmaður Flamengo, Cristian sagðist hafa hlegið grimmt þegar hann heyrði fréttirnar af tapi Fluminense frá félaga sínum í Flamengo.
,,Þetta gerði okkur glaða. Þegar þetta gerðist fyrir okkur þá var hlegið að okkur þannig er þetta bara. Stundum vinnur þú og stundum tapar þú," sagði Cristian.


