Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 05. júlí 2008 08:07
Guðmundur Dagur Ólafsson
Heimild: Sky Sports 
Galatasaray með tilboð í Lucas Neill
Tyrkneska félagið Galatasaray hefur gert tilboð í Lucas Neill, fyrirliða West Ham United, samkvæmt heimildum Sky Sports fréttastofunnar.

Galatasaray segir að félagið hefur þegar samið við landa Neill, Harry Kewell, en sjálfur segir vængmaðurinn að þær fréttir séu ekki sannar. Þeir vonast til að fá báða Ástralana til liðs við sig fyrir næsta tímabil.

Neill gekk í raðir West Ham í janúar 2007 og spilaði lykilhlutverk í að bjarga liðinu frá falli og hann var svo gerður að fyrirliða liðsins síðasta sumar.

West Ham vill ekki missa fyrirliðann en hann þar sem hann er einn af launahæstu leikmönnum liðsins gætu þeir neyðst til að selja hann ef tilboðið er gott.
Slapp
banner
banner