Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 05. júlí 2008 09:00
Guðmundur Dagur Ólafsson
Heimild: Sky Sports 
Marseille nálægt því að landa Bakari Kone
Franska félagið Marseille er nálægt þvi að kaupa framherjann Bakari Kone frá Nice og mun hann skrifa undir fjögurra ára samning við félagið.

Nice vildi fá 10,3 milljónir punda fyrir leikmanninn, sem á tvö ár eftir af samningi sínum við félagið en nú hefur náðast samkomulag um að Marseille borgi aðeins 6,3 milljónir.

Kone var markahæsti leikmaður Nice á síðasta tímabili þegar hann skoraði 14 mörk í 29 deildarleikjum og hann segist vera hæstánægður með að ganga til liðs við Marseille og feta þar í fótspor landa sinna, Basile Boli og Didier Drogba.

„Ég er mjög ánægður með að ganga til liðs við þetta frábæra félag. Þegar ég var barn þá skoraði frægur Fílstrendingur (Boli) mark sem vann Meistaradeildina fyrir félagið og mig dreymdi um félagið þegar Didier var að skora fyrir þá. Margir landar mínar hafa náð árangri hér og ég vil halda þeirri hefð áfram," sagði Kone.

Slapp
banner
banner