Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 05. júlí 2008 14:07
Guðmundur Dagur Ólafsson
Heimild: Sky Sports 
Obafemi Martins: Ég gæti ekki hafnað Arsenal
Obafemi Martins, framherji Newcastle United, segir að það yrði erfitt fyrir sig að hafna Arsenal en hann sé þó ekki að leitast eftir því að yfirgefa Newcastle.

Arsenal hafa verið orðaðir við leikmanninn í sumar en hann gekk til liðs við Newcastle fyrir 10 milljónir punda fyrir tveimur árum.

Undir lok síðasta tímabils sagði Kevin Keegan, stjóri Newcastle, að Martins væri ekki til sölu og að ekkert tilboð hefði borist frá Arsenal.

Sjálfur segir hann að það sé heiður að vera orðaður við Arsenal en sé ánægður hjá Newcastle og því ekki að leitast að fara frá félaginu

„Arsenal er stórt félag sem allir vilja spila fyrir. Ég er ánægður með að vera orðaður við þá en eins og staðan er í dag þá er ég leikmaður Newcastle. Ef félögin komast að samkomulagi þá gæti eitthvað gerst en ef ekki þá verð ég áfram leikmaður Newcastle. Ég er ekki að segja að ég vilji fara en allt getur gerst í fótbolta," sagði Martins.


Slapp
banner
banner
banner