Heimild: Sky Sports
Nýliðar Hull City í ensku Úrvalsdeildinni eru í viðræðum um að fá miðjumanninn George Boateng til sín frá Middlesbrough.
Í gær gekk félagið frá kaupum á Brasilíumanninum Geovanni frá Manchester City og þeir eru á fullu þessa daganna að leita að meiri liðsstyrk.
Boateng hefur þegar sagt að hann sé tilbúinn að fara frá Boro en hann á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við liðið. Hann var í ónáð hjá stjóra liðsins, Gareth Southgate, á síðasta tímabili og nú hefur hann fengið tækifæri að ganga til liðs við Hull.
Félögin eiga þó enn eftir að komast að samkomulagi um kaupverð en stjórnarformaður Hull, Paul Duffen, hefur staðfest að félagið hefur þegar rætt við Boateng.
„Viðræðurnar hafa átt sér stað í nokkrar vikur en það er mikilvægt að við skýrum frá því að þetta er gert með samþykki Middlesbrough. Við erum vongóðir um að ná samkomulagi við leikmanninn. Við erum á lokastigi í viðræðum við leikmanninn og við félagið," sagði Duffen.


