Þrír leikir fara fram í 2. deild karla í dag og þar af er tveimur lokið. Hvöt lagði Hött á Egilsstöðum í leik þar sem Óskar Snær Vignisson skoraði sigurmarkið og á Sauðárkróki jafnaði Halldór Jón Sigurðsson metin fyrir Tindastól gegn Hamar þegar fjórar mínútur voru komnar framyfir venjulegan leiktíma.
Leikur ÍH og Völsungs hófst svo klukkan 16:00.
Leikur ÍH og Völsungs hófst svo klukkan 16:00.
Höttur 1-2 Hvöt
1-0 Vilmar Freyr Sævarsson
1-1 Mirnes Smajlovic
1-2 Óskar Snær Vignisson
Tindastóll 1-1 Hamar:
0-1 Milan Djurovic ('33)
1-1 Halldór Jón Sigurðsson ('94)
ÍH 0-1 Völsungur: Í gangi - hófst 16:00
0-1 Bjarki Baldvinsson


