Heimild: Sporting Life
Jamie Carragher leikmaður Liverpool er hungraður í það að vinna ensku deildina en langt er síðan Liverpool vann deildina síðast.
,,Fólk er alltaf að tala um að við þurfum að fara að vinna deildina en ef ég á að vera hreinskilin þá hefur það ekki verið oft sem við höfum ógnað því," sagði Carragher.
,,Ef við værum að setja pressu á efsta liðið þegar 10 til 15 leikir væru eftir þá getur allt gerst."
,,Á þessari leiktíð væri gaman að veita smá samkeppni og vera með í þessu."
,,Ég held að það hafi aðeins einu sinni gerst síðan ég kom í liðið, þá spilaði ég nokkra leiki þegar Roy Evans var með liðið 1996-97."
,,Við hefur líklega átt að vinna deildina en það gerðist ekki en síðan þá hefur aldrei gerst svo þetta er eitthvað sem við leitum af," sagði Carragher.



