Óttar Bjarni Guðmundsson (til vinstri) skoraði eitt mark fyrir KB og Sigurður Höskuldsson skoraði bæði mörk Snæfellinga. Hér eru þeir í leiknum í dag.
Tveir leikir fóru fram í þriðju deild karla í dag. Í B riðli gerðu Álftanes og BÍ/Bolungarvík 2-2 jafntefli en heimamenn komust í 2-0 í þeim leik.
KB sigraði Snæfell 5-2 í C riðli þar sem Ólafur Hrannar Kristjánsson fór mikinn og skoraði þrennu fyrir KB auk þess að leggja hin tvö mörkin upp.
KB 5 - 2 Snæfell
1-0 Stefán Ingi Gunnarsson ('23)
1-1 Sigurður Höskuldsson ('46)
2-1 Óttar Bjarni Guðmundsson ('48)
3-1 Ólafur Hrannar Kristjánsson ('53)
4-1 Ólafur Hrannar Kristjánsson ('76)
4-2 Sigurður Höskuldsson ('80)
5-2 Ólafur Hrannar Kristjánsson ('86)
Álftanes 2 - 2 BÍ/Bolungarvík
1-0 Andri Janusson ('43)
2-0 Sveinn Guðmundsson ('56)
2-1 Andri Rúnar Bjarnason ('69)
2-2 Pétur Geir Svavarsson ('81)



