Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 05. júlí 2008 18:50
Magnús Már Einarsson
2.deild umfjallanir: Botnbaráttan harðnar
Úr leik Tindastóls og Hamars í dag.
Úr leik Tindastóls og Hamars í dag.
Mynd: Valgeir Kárason
Boltinn á leið í netið eftir skotið frá Halldóri Jóni.
Boltinn á leið í netið eftir skotið frá Halldóri Jóni.
Mynd: Ómar Bragi Stefánsson
Halldór Jón var sáttur í leikslok.
Halldór Jón var sáttur í leikslok.
Mynd: Ómar Bragi Stefánsson
Úr leik Hattar og Hvatar.
Úr leik Hattar og Hvatar.
Mynd: Austurglugginn/Gunnar
Hörður Ingþór Harðarson fer fyrir skot frá Bjarka Baldvinssyni í leik ÍH og Völsungs.
Hörður Ingþór Harðarson fer fyrir skot frá Bjarka Baldvinssyni í leik ÍH og Völsungs.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Bjarki og Hörður aftur í baráttunni.
Bjarki og Hörður aftur í baráttunni.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Þrír leikir fóru fram í níundu umferð í annarri deild karla í dag. Halldór Jón Sigurðsson tryggði Tindastóli stig gegn Hamar, Hvöt vann óvæntan útisigur á Hetti og ÍH og Völsungur gerðu 1-1 jafntefli.

Botnbaráttan í deildinni er nú orðinn ótrúlega jöfn en fjögur neðstu liðin eru öll með sex stig. Stigi fyrir ofan þau er síðan ÍH og Reynir Sandgerði er þar ekki langt undan.


Donni bjargvættur Tindastóls í uppbótartíma:
Tindastóll 1 - 1 Hamar:
0-1 Milan Djurovic ('33)
1-1 Halldór Jón Sigurðsson ('94)

Tindastóll tók að móti Hamarsmönnum á Sauðárkróksvelli í dag og voru aðstæður hreint út sagt frábærar. Hitinn um 23° og örlítill andvari til að kæla niður leikmenn.

Hamarsmenn byrjuðu að krafti og eftir aðeins tvær mínútur áttu þeir gott skot að marki sem Gísli markvörður Tindastóls varði. Tindastóll svaraði í kjölfarið eftir ágæta aukaspyrnu frá Halldóri Jóni sem endar með hornspyrnu sem ekkert varð úr. Á 15 mín. eru Hamarsmenn í sókn og eftir klafs í teignum náðu þeir skoti sem hafnði í þverslánni hjá Tindastóli og þar máttu heimamenn teljast heppnir.

Nokkurt jafnvægi skapaðist í leiknum og liðin skiptust á að sækja. Hamarsmenn áttu hættulegri færi en náðu ekki skora. Boban Ristic átti gott skot á markið en boltinn hafnaði í varnarmanni Tindastóls og Hamarsmenn fengu hornspyrnu sem síðan rann út í sandinn.

Á 33. mínútu dróg til tíðinda, Hamarsmenn pressuðu nokkuð stíft og Milan Djurovic náði ágætu skoti fyrir utan teig, fastur jarðarbolti sem hafnaði út við stöng og Gísli markvörður náði ekki að verja. Staðan orðin 0-1 og Tindastóls reyndu hvað þeir gátu til að jafna fyrir hálfleik. Bjarki Már náði ágætum skalla á markið en boltinn fór framhjá. Þannig var staðan í hálfleik.

Í seinni hálfleik hélt baráttan áfram. Tindastóll hélt áfram að senda langa bolta inn fyrir vörn Hamarsmanna sem var alls ekki ganga upp. Hamarsmenn börðust til að halda sínum þremur stigum og léku oft vel sín á milli og áttu nokkrar mjög hættulegar sóknir.

Tvisvar til þrisvar sinnum komust sóknarmenn þeirra einir í gegn en brást síðan bogalistin fyrir framan markið. Hamarsmenn hefðu hæglega getað verið búnir að skora tvo mörk en heilladísirnar voru ekki með þeim að þessu sinni. Tindastóll setti tvo unga leikmenn báða fædda 1991 inná þegar um 10 mín. voru liðnar af seinni hálfleik. Eldfljótir ungir leikmenn sem þó náðu ekki að skora eiga eftir að reynast Tindastóli drjúgir.

Þegar líða fór á leikinn sóttu Tindastólsmenn heldur meira en sókn þeirra var ekki nægilega sterk og varnarmenn Hamars sá til að ekkert varð úr þeim.

Á 43. mín síðari hálfleiks átti Fannar Freyr gott skot á mark Hamars en markmaður þeirra náði að verja. Dómari leiksins hafði í nægu að snúast og fannst Tindastólsmönnum á sig hallað í dómgæslunni. Róbert þjálfara Tindastóls var vikið upp í stúku á lokamínútunum enda meira en ósáttur við dómara leiksins.

Þegar klukkan er komin 4 mínútur fram yfir venjulegan leiktíma átti Halldór Jón (Donni) fast skot á markið af töluverðu færi sem markvörður Hamars náði ekki að halda og boltinn fer í markið og Tindastóll jafnar leikinn 1-1 sem síðan urðu lokatölur leiksins.

Í heildina séð var Tindastóll heppinn að ná í eitt stig í leiknum. Þeir áttu ekki margar markvissar og hættulegar sóknir en það má hrósa þeim fyrir að hafa ekki gefist upp og náð að ná jafntefli. Hamarsmenn eru líkast til mjög ósáttir við aðeins eitt stig enda áttu þeir fleiri og hættulegri færi en Tindastóll.
Fótbolti.net, Sauðárkrókur - Ómar Bragi Stefánsson.


Óvæntur sigur Hvöt á Egilsstöðum
Höttur 1 - 2 Hvöt
1-0 Vilmar Freyr Sævarsson
1-1 Mirnes Smajlovic
1-2 Óskar Snær Vignisson

Hvöt var fyrir leikinn í neðsta sæti en liðið lék vel í fyrri hálfleik á Egilsstöðum.

Hattarmenn komust hins vegar yfir eftir korter. Varnarmenn Hvatar náðu ekki að hreinsa burt eftir hornspyrnu og Vilmar Freyr Sævarsson nýtti sér það með því að skora fyrsta mark leiksins.

Skömmu síðar jafnaði Hvöt hins vegar, Bjarni Pálmason átti sendingu inn fyrir á Mirnes Smajlovic sem lék á Henrik Bödker í marki Hattar og skoraði.

Hvöt lét kné fylgja kviði og komst í 2-1 þegar um fimm mínútur voru til leikhlés. Liðið vann þá boltann á miðjunni, Óskar Snær Vignisson óð upp völlinn og skoraði með skoti frá vítateig.

Í síðari hálfleik drógu leikmenn Hvatar sig til baka en þeir fengu gott færi til að komast í 3-1. Mirnes slapp þá í gegn en Henrik varði í markinu.

Garðar Már Grétarsson fékk síðan fínt færi til að jafna fyrir Hött en skot hans fór yfir og lokatölurnar á Egilsstöðum 2-1 fyrir Hvöt sem hoppaði þar með úr botnsætinu upp í það tíunda.


Þjálfarinn tryggði ÍH stig:
ÍH 1 - 1 Völsungur
0-1 Bjarki Baldvinsson
1-1 Mikael NIkulásson

Völsungur lék með smá golu í bakið í fyrri hálfleik og Húsvíkingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru sterkari aðilinn.

Varnarmenn ÍH höfðu nokkrum sinnum bjargað á síðustu stundu áður en að fyrsta markið kom eftir um það bil hálftíma.

Bjarki Baldvinsson slapp þá í gegn, komst framhjá Arnari Inga Sigurðssyni í marki ÍH og skoraði. Bjarki komst nálægt því að bæta við öðru marki skömmu síðar en hann átti þá skot í stöng.

Völsungur leiddi 1-0 í leikhléi en fljótlega í síðari hálfleik náðu leikmenn ÍH að jafna.

Mikael Nikulásson, þjálfari liðsins, tók sig þá til og skoraði beint úr aukaspyrnu en þetta var fyrsti leikurinn sem hann spilar í sumar.

Skömmu síðar fékk Elfar Árni Aðalsteinsson framherji Völsungs sitt annað gula spjald fyrir leikaraskap. Völsungar voru ekki ánægðir með spjaldið en Elfar hafði fyrr í leiknum fengið gult spjald fyrir kjaftbrúk.

Eftir þetta hafði ÍH yfirhöndina og undir lokin náði liðið ágætis pressu. ÍH fékk meðal annars nokkrar hornspyrnur á stutum kafla en þeir náðu ekki að nýta sér það og niðurstaðan á Ásvöllum 1-1.

ÍH er eftir þennan leik í áttunda sætinu með sjö stig en Völsungur er í ellefta sæti með sex stig, líkt og þrjú önnur lið.
Slapp
banner
banner