ÍH og Völsungur gerðu 1-1 jafntefli í síðasta leik dagsins í annarri deild karla.
Húsvíkingar leiddu 1-0 í leikhléi með marki frá Bjarka Baldvinssyni.
Mikael Nikulásson, spilandi þjálfari ÍH, jafnaði hins vegar úr aukaspyrnu snemma í síðari hálfleik.
Elfar Árni Aðalsteinsson framherji Völsunga fékk skömmu síðar að líta rauða spjaldið en lokatölurnar 1-1.
ÍH 1 - 1 Völsungur
0-1 Bjarki Baldvinsson
1-1 Mikael Nikulásson
Rautt spjald: Elfar Árni Aðalsteinsson (Völsungur)




