Gunnar Kristjánsson og liðsfélagar hans í Víkingi Reykjavík fagna sigurmarkinu gegn Víkingi Ólafsvík.
Fjórir leikir fóru fram í 1. deild karla í dag þar sem liðin í efstu tveimur sætunu, ÍBV og Selfoss unnu sína leiki eins og Víkingur og Haukar gerðu einnig. Hér að neðan má sjá umfjallanir um alla þessa leiki.
Selfoss sigur í blíðunni
Selfoss 4-1 Fjarðabyggð:
0-1 Sveinbjörn Jónasson ('13)
1-1 Arelíus Marteinsson ('47)
2-1 Sjálfsmark ('56)
3-1 Andri Freyr Björnsson ('66)
4-1 Viðar Örn Kjartansson ('88)
Selfoss og Fjarðarbyggð áttust við í frábæru fótboltaveðri á Selfossvelli í dag, 17 stiga hiti var og örlítil gola sem stóð á annað markið. Leikurinn þróaðist óvenjulega, en Fjarðarbyggð átti fyrri hálfleik og var yfir 0-1 í hálfleik. En Selfyssingar komu til baka í seinni hálfleik og unnu 4-1.
Selfyssingar áttu fyrsta færi leiksins á fyrstu mínútu leiksins, þegar Boban stakk inn á Viðar Örn Kjartansson en skot hans var blokkerað. Eftir þetta tók Fjarðarbyggð öll völd á vellinum og spiluðu eins og sá sem valdið hefur. Á 9. mínútu varði Jóhann Ólafur markmaður Selfyssinga mjög vel og rétt seinna bjargaði Jón Sveinsson fyrirliði Selfyssinga á línu skoti frá Vilberg Marinó.
Á 13. mínútu skoruðu svo Fjarðarbyggð, eftir misskilning í vörn Selfoss komst Sveinbjörn Jónasson inn í sendingu og setti boltann laglega í markið. Tveimur mínútum seinna fékk Stefán Þór Eysteinsson dauðafæri, en skot hans af markteig fór yfir mark Selfoss.
Eftir 20 mínútna leik tók Andri Hjörvar góða aukaspyrnu Jóhann í marki Selfyssinga varði vel. Fjórum mínútum seinna átti Andri Þór skalla, en enn kom Jóhann markmaður Selfyssingum til bjargar. Uppúr horninu átti Andri hjörvar skalla í slá á marki Selfoss.
Á næstu mínútum áttu Fjarðarbyggð nokkrar hornspyrnur og leituðu að öðru marki, en lukkan var með liði Selfyssinga. Austfirðingar voru mun betri aðilinn í fyrri hálfleik og voru mjög óheppnir að bæta ekki við mörkum, en Selfyssingar áttu þó tvö síðustu færin í hálfleiknum, fyrst var Sævar sloppinn í gegn en varnarmaður komst fyrir sendingu, sem ætluð var Henning. Síðast skot leiksins átti svo Viðar Örn, en skot hans frá vítateig var vel varið.
Algjör við snúningur var á leiknum í seinni hálfleik, Selfyssingar sýndu mátt sinn, tóku leikinn í gjörgæslu og gáfu Fjarðarbyggð ekkert. Það voru ekki nema þrjár mínútur liðnar er Arilíus setti boltann í netið með vinstri eftir þunga sókn. Fimm mínútum seinna átti Henning skot framhjá eftir kross frá Sigurði Eyberg. Tveimur mínútum seinna átti Jón Sveins gott skot eftir sendingu frá Viðari. Mínútu seinna skaut Sævar yfir eftir góða sókn.
Eftir tíu mínútna leik komust Fjarðarbyggð svo loks fram yfir miðju og áttu horn sem ekkert varð úr, en Selfyssingar voru fljótir að refsa og skoruðu strax úr hraðri sókn. Viðar Örn komst þá upp að endamörkum og endaði skot hans inn í markinu eftir viðkomu í varnarmanni Fjarðarbyggð. Staðan orðin 2-1 fyrir Selfoss og þeir voru ekki hættir
Á 65. mínútu slapp Sævar Þór í gegn en varnarmaður bjargaði í horn. Mínútu seinna átti Agnar Bragi góða sendingu upp hægri kannt á Sigurð Eyberg, góður kross hans fór á fjær og þar var Andri Freyr mættur og átti ekki í vandræðum með að stýra boltanum í netið. Staðan orðin 3-1 fyrir heimamenn.
Tveimur mínútum seinna braust Henning í gegnum vörn Fjarðarbyggðar, en skot hans fór rétt framhjá. Á 75. mínútu áttu Fjarðarbyggð góða sókn, en skalli frá sóknarmanni fór rétt yfir. Á 85. mínútu átti Sævar góða aukaspyrnu sem Srdjan varði vel.
Þegar tvær mínútur voru eftir fékk Viðar Þór boltann rétt fyrir utan teig, tók tvo á og setti boltann snyrtilega framhjá markmanni Fjarðarbyggð. Staðann orðinn 4-1 fyrir Selfoss og var það loka niðurstaðan. Leikurinn þróaðist mjög furðulega, Fjarðarbyggð átti fyrri hálfleik, en Selfoss þann seinni, án þess þó að veðrið setti strik í leik liðana, enda ekkert út á það að setja.
Ummæli eftir leik:
David Hannah, aðstoðarþjálfari Fjarðabyggðar:
,,Það var ótrúlegt að við skildum ekki vera fjögur til fimm- núll yfir í hálfleik. Við áttum fyrri hálfleik og áttum að slátra þessu þá. Í hálfleik töluðum við um að gefa Selfyssingum engin færi í upphafi seinni hálfleiks, en það gekk ekki eftir. Selfyssingar eru með gott lið sem ber að varast, þeir biðu eftir færi og gáfu okkur ekkert færi á sér eftir að þeir skoruðu. Við verðum að hrista okkur saman og taka allt það góða sem var í okkar leik yfir í næsta leik, því margt gott var í leiknum þrátt fyrir loka stöðuna," sagði David Hannah aðstoðarþjálfari Fjarðarbyggð.
Viðar Örn Kjartansson, leikmaður Selfoss:
,,Ég er hrikalega ánægður með síðari hálfleik okkar, þá sýndum við okkar leik. Enn og aftur sýndu við karakterinn í liðinu og rifum okkur upp þrátt fyrir að lenda undir. Strákarnir stóðu sig allir vel, en engin þó betur en Zoran sem tók hálfleiksræðuna í boði “Cult”. Ég verð líka að hrósa stuðningsmannasveitinni “Skjálfti” en þeir gáfust ekki upp á okkur, þrátt fyrir dapran fyrri hálfleik hjá okkur," sagði Viðar Örn Kjartansson sem var maður leiksins í dag.
Fótbolti.net, Selfoss - Tómas Þóroddsson.
Sjötti sigur Hauka í röð
Haukar 1-0 Þór:
1-0 Hilmar Geir Eiðsson ('63)
Þórsarar frá Akureyri mættu Haukum á Ásvöllum í dag. Lítið sem ekkert gerðist fyrstu mínúturnar. Og ekki fyrr en á 35.mínútu sem fyrsta færi leiksins leit dagsins ljós.
Hilmar Geir Eiðsson átti þá sendingu fyrir frá vinstri beint á Edilon Hreinsson sem skallaði að marki Þórs en Árni Kristinn Skaftason varði glæsilega í horn, úr horninu fékk Hilmar Trausti Arnarsson ákjósanlegt marktækifæri er hann var einn og óvaldur á markteigslínunni en skot hans yfir markið.
Þetta var eina færi fyrri hálfleiksins en á 44.mínútu þurfti Amir Mehica markvörður Hauka að fara af velli eftir að hann og sóknarmaður Þórs skullu saman.
Fyrsta mark leiksins og fyrsta færi seinni hálfleiks átti kom á 63.mínútu. Hilmar Trausti átti þá stungusendingu inn fyrir vörn Þórs þar sem Hilmar Geir var einn og óvaldaður, Árni kom á móti Hilmari en hann skaut í nærhornið framhjá Árna, afar vel af þessu staðið og staðan orðin 1-0.
Á 81.mínútu geystist Ásgeir Þór Ingólfsson upp hægri kantinn en Aleksander Linta hékk aftan í Ásgeiri og dómari leiksins Valgeir Valgeirsson dæmdi aukaspyrnu og sýndi Linta gaula spjaldið. Upp úr aukaspyrnunni fékk Denis Curic upplagt marktækifæri en skot hans rétt yfir markið.
Síðasta færi leiksins fengu Haukar en varamaðurinn Hilmar Rafn Emilsson slapp þá einn inn fyrir vörn gestanna, vippaði boltanum yfir Árna en einum of hátt því boltinn fór í þverslánna og yfir.
Sigur Hauka því staðreynd, en Þórsarar ógnuðu lítið sem ekkert að marki Hauka og var sigur Hauka því nokkuð þægilegur.
Ummæli eftir leik:
Þórhallur Dan Jóhannsson fyrirliði Hauka:
,,Mér fannst þetta tiltögulega öruggt hjá okkur. Við áttum auðvitað að vera löngu búnir að klára þetta fyrir lífslöngu, sérstaklega í fyrri hálfleik þá var bara eitt lið á vellinum ég hreinilega man ekki eftir færi sem þeir fengu þannig þetta var „soldid“ og gott að fá ekki á sig mark."
,,Þeir voru bara með einn frammi, Hrein Hringsson og þeir voru ekkert mikið að pressa okkur. Það var algjör óþarfi að fá öll þessi færi og vera ekki búnir að skora og klára leikinn mikið, mikið fyrr. Við áttum að vera búnir að klára þetta í fyrri hálfleik. Eftir að við skoruðum er óþarfi að fara inn í 89., 90.mínútu með eins marks forystu, því þetta gat alveg dottið fyrir þeim undir restina. Mér fannst þetta vera einum of spennandi undir lokin því þetta var búið að vera svo „solid“ allan leikinn."
Haukarnir mæta í næstu umferð Stjörnunni í Garðabæ og er það úrslitaleikur um það hvort Haukar verði áfram í toppbaráttunni eða lendi nokkrum stigum á eftir næstu liðum.
,,Mér finnst alltaf skemmtilegt í svoleiðis leikjum og við erum tilbúnir í þann leik. Hver leikur núna er úrslitaleikur , þetta var úrslitaleikur hefðum við tapað honum þá hefðum við ekki átt möguleika í næsta leik. Svo þetta er gaman, við erum í úrslitaleikjum núna í hverri viku."
Fótbolti.net, Hafnarfirði - Arnar Daði Arnarson.
Dramatískur sigur Víkinga á nöfnum sínum frá Ólafsvík
Víkingur R 3-2 Víkingur Ó
1-0 Egill Atlason ('53)
1-1 Jón Pétur Pétursson ('60)
1-2 Brynjar Víðisson ('70)
2-2 Dalibor Nedic ('74, sjálfsmark)
3-2 Gunnar Kristjánsson ('88)
Víkingur frá Reykjavík heldur áfram að flugi í 1. deild karla og í dag tókst þeim að leggja nafna sína, Víking frá Ólafsvík að velli með marki Gunnars Kristjánssonar beint úr aukaspyrnu í lokin.
Gestirnir áttu fyrsta hættulega færið í leiknum þegar Eyþór Guðnason skaut í þverslá eftir níu mínútna leik en boltinn hafði verið skallaður til hans innfyrir vörn heimamanna. Hinum megin á vellinum átti Halldór Smári Sigurðsson hættulegt skotfæri tíu mínútum síðar en skot hans fór í Egil Atlason og yfir markið.
Eftir þetta skapaðist tvisvar hætta eftir fyrirgjafir Péturs Svanssonar leikmanns Reykjvíkur Víkings og í bæði skiptin átti Egill Atlason gott færi en tókst ekki að nýta það, fyrst skallaði hann framhjá og svo fór bakfallsspyrna hans framhjá. Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleiknum.
Þegar um átta mínútur voru liðnar af þeim síðari tókst heimamönnum að ná forystunni í leiknum. Pétur Svansson tók þá hornspyrnu og boltinn féll fyrir fætur Egils Atlasonar sem afgreiddi hann í netið, staðan orðin 1-0.
En gestirnir gáfust ekkert upp við það og komu sterkir til baka. Þeim tókst að jafna metin eftir um klukkutíma leik en þar var að verki fyrirliðinn Jón Pétur Pétursson. Miroslav Pilipovic hafði unnið skallabolta rétt fyrir utan vítateig heimamanna og boltinn fór inn í teiginn þar sem Jón Pétur tók á móti honum og vippaði yfir Ingvar Kale markjvörð Víkings R.
Ólafsvíkingar náðu svo forystunni í leiknum tíu mínútum síðar. Eyþór Guðnason gaf boltann þá út á Brynjar Víðisson sem var á auðum sjó og varnarmenn heimamanna sofandi svo hann þrumaði boltanum á markið og kom gestunum yfir.
Adam var þó ekki lengi í Paradís því aðeins fjórum mínútum síðar var staðan orðin 2-2. Einar Hjörleifsson markvörður gestanna hafði þá varist vel fyrir Gunnari Kristjánssyni og boltinn fór laus í teiginn þar sem Dalibor Nedic miðvörður Ólafsvíkinga kom aðvífandi en varð fyrir því óhappi að spyrna boltanum í eigið net.
Það var svo þegar rétt rúmar þrjár mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma að heimamenn í Víkingi Reykjavík skoruðu sigurmarkið í leiknum. Þeir fengu þá aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig gestanna og spyrnuna tók Gunnar Kristjánsson frábærlega og boltinn söng í netinu við mikinn fögnuð viðstaddra en um 200 áhorfendur mættu í Víkina í dag.
Um mínútu síðar fékk Alfreð Elías Jóhannsson leikmaður Ólafsvíkinga svo að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt og starfsmaður á bekknum hjá Víkingi fór sömu leið fyrir að skammast í dómaranum.
Gestirnir glímdu nokkuð við meiðsli sinna manna í dag og þannig þurftu þeir að nota tvær skiptingar á fyrsta hálftímanum vegna meiðsla og Þorsteinn Már Ragnarsson sem hafði komið inná sem varamaður þurfti að fá skiptingu um miðjan síðari hálfleikinn vegna meiðsla. Senid Kulas lék meiddur síðasta stundarfjórðunginn þar sem skiptingarnar voru búnar og þá var Pilopovic nokkuð utan vallar síðustu mínúturnar vegna meiðsla.
Ummæli eftir leik:
Valur Adolf Úlfarsson, Víkingur:
,,Þetta hefur komið á síðustu mínútunum í síðustu þremur leikjum svo þetta fellur með okkur í augnablikinu, annað hvort erum við að tapa á síðustu mínútunum, eða vinna á síðustu mínútunum, en þetta er okkar megin núna og það heldur áfram.”
,,Maður finnur það núna að við erum ekki að missa trúna þrátt fyrir að vera 1-2 undir. Það koma ferskir menn oft inn í lokin eins og Brynjar Orri, Stefán Kári og fleiri. Þetta byrjaði svolítið varfærnislega en svo settum við þessa Jokera inná sem kunna ekki að spila vörn en geta tekið áhættur.”
Fótbolti.net, Fossvogur - Hafliði Breiðfjörð.
Atli Heimisson tryggði sigur ÍBV í lokin
ÍBV 2 - 1 KS/Leiftur
1-0 Italo Jorge Maciel
1-1 Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson
2-1 Atli Heimisson
Leikurinn fór rólega af stað og bæði lið skiptust á að halda boltanum innan liðs án þess að skapa neina hættu.
Það var ekki fyrr en eftir 10 mínútna leik þegar fyrsta hættulega færið leit dagsins ljós. Eyjamenn spiluðu boltann þá upp vinstri kantinn og sendu fyrir þar sem Atli Heimisson var mættur og skallaði boltann hátt í loft upp og hann stefndi upp í markhornið þegar Þorvaldur Þorsteinsson var mættur og sló boltann.
Eftir um korters leik fengu ÍBV svo hornspyrnu sem þeir tóku stutt. Augustine Nsumba fékk þá boltann frá Italo Jorge Maciel, sendi hann aftur á Italo sem lék boltann örfáa metra og lét svo vaða að marki og fór boltinn í slánna, stöngina og inn. Vægast sagt glæsilegt mark og Italo þarna að skora sitt fyrsta mark fyrir ÍBV.
Heimamenn voru svo nálægt því að bæta við öðru marki stuttu seinna þegar Bjarni Hólm Aðalsteinsson skallaði boltann rétt framhjá marki gestanna eftir hornspyrnu.
Gestirnir áttu svo sitt fyrsta alvöru skot að marki eftir um 25 mínútna leik þegar Þórarinn Ingi Valdimarsson gerði sig sekann um mistök í vörninni þegar hann missti boltann beint í fæturna á Jóhanni Erni Guðbrandssyni sem skaut að marki en boltinn yfir slánna.
Það dró svo til tíðinda eftir um 35 mínútna leik þegar vesenagangur varð í vörn Eyjamanna og hár bolti barst inn í teig þar sem Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson var aleinn og skallaði boltann auðveldlega framhjá Alberti Sævarssyni í marki ÍBV. Ódýrt mark og svekkjandi fyrir heimamenn þar sem þetta var í raun fyrsta marktækifæri gestanna.
Þetta reyndist það síðasta markverða sem gerðist í fyrri hálfleik áður en dómarinn flautaði til leikhlés.
Seinni hálfleikur fór rólega af stað en eftir um 15 mínútna leik átti Nsumba skot að marki gestanna sem Þorvaldur átti í erfiðleikum með að halda og missti boltann inn í markið. Dómarinn dæmdi þá mark og Eyjamenn fögnuðu vel og innilega. Þessi fagnaðarlæti stóðu þó stutt yfir þar sem dómarinn tók óvænt upp á því að dæma markið af. Af hverju hann gerði það er góð spurning sem undirritaður hefur ekki svar við.
Lítið gerðist eftir þetta og leikurinn einkenndist af baráttu inni á miðju, Eyjamenn þó ívið hættulegri og voru að skapa meira heldur en gestirnir sem lágu nokkuð aftarlega.
Þegar 3 mínútur lifðu leiks fór Þórarinn Ingi illa með vörn gestanna og sendi á Atla sem lék á varnarmann KS/Leifturs og lét vaða að marki. Boltinn átti þá viðkomu í varnarmanni gestanna og þaðan í markið. Þorvaldur í marki KS/Leifturs var í boltanum en náði ekki að koma í veg fyrir það að boltinn endaði í netinu.
Þrjú stig til Eyjamanna sem tóku sér aldeilis góðan tíma í að skora loksins sigurmarkið.
Fótbolti.net, Vestmannaeyjar - Einar Kristinn Kárason.




