Heimild:  
Mynd: NordicPhotos
fös 11.júl 2008 17:05 Davíð Örn Atlason,
Klinsmann: Podolski verður áfram
Jurgen Klinsmann, knattspyrnustjóri Bayern Munchen vill ólmur halda Lukas Podolski hjá félaginu.

Framtíð Podolski hefur mikið verið í umræðunni eftir að hann náði ekki að vinna sér sæti í byrjunarliði Bæjara á síðasta tímabili. En þá var Ottmar Hitzfeld við stjórn liðsins og Klinsmann vill gera allt til þess að hafa Podolski ánægðan hjá liðinu.

,,Lukas á tvö ár eftir af samningnum sínum og það þarf ekki að segja meira. Ég geri allt til þess að hafa Lukas ánægðan hjá Bayern," sagði Klinsmann, sem var landsliðsþjálfari Þjóðverja og starfaði þá meðal annars með Podolski.

,,Ég hjálpaði honum mikið þegar að ég var landsliðsþjálfari og ég þekki hann bæði sem persónu og íþróttamann. Ég kann á hann og við munum vonandi ná vel saman."

,,Ég ætla ekki að tefla honum fram sem vængmanni, heldur framherja. Hann skorar mörkin sín í vítateignum en ekki af kantinum," bætti Klinsmann við.
athugasemdir
Nýjustu fréttirnar