Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 03. september 2008 10:03
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Powerade slúðrið: Kevin Keegan ósáttur
Þá er komið að helsta slúðrinu úr ensku blöðunum á þessum fína miðvikudegi.



Ósætti milli Kevin Keegan og stjórnarmanna Newcastle er þar sem félagið reyndi að selja Michael Owen og Joey Barton án þess að Keegan vissi af því. (Ýmsir miðlar)

Keegan er á förum frá Newcastle eftir rifrildi við Dennis Wise. (Ýmsir miðlar)

Keegan er að skoða lagalegan rétt sinn og gæti farið í mál við Mike Ashley eiganda Newcastle. (Daily Mail)

Wise og Gus Poyet, aðstoðarstjóri Tottenham, munu taka við Newcastle ef Keegan verður látinn fara. (Ýmsir miðlar)

Everton hætti við að fá Alan Smith frá Newcastle eftir að félagið fékk þau skilaboð að verðmiði leikmannsins hefði hækkað. (Daily Mail)

Luiz Felipe Scolari stjóri Chelsea vill fá góðan pening til leikmannakaupa í janúar þar sem félagið missti af Robinho. (The Times)

Wigan er við það að fá markvörðinn Richard Kingson en hann þótti ekki sýna góða takta með Birmingham í fyrra. (Daily Express)

David Moyes stjóri Everton er tilbúinn að gera nýjan samning við félagið eftir að honum tókst að landa miðjumanninum Marouane Fellaini. (The Guardian)

Tom Hicks og George Gillett eigendur Liverpool gætu verið tilbúnir að selja félagið til er Sheikh Mohammed í Dubai. (The Times)

Framtíð Alan Curbishley stjóra West Ham er í óvissu eftir að hann var ósáttur við söluna á George McCartney til Sunderland. (Ýmsir miðlar)

Vandræði Curbishley urðu ennþá meira á sunnudag eftir að hann reifst við fyrirliðann Lucas Neill inni í búningsklefa eftir 4-1 sigur á Blackburn Rovers. (The Independent)
Slapp
banner
banner