Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 04. september 2008 13:52
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: BBC 
Robinho: Chelsea bauð vel og ég tók því
Mynd: Getty Images
Robinho nýjasti leikmaður Manchester City virðist ekki alveg hafa áttað sig á því að hann sé komin í raðir félagsins.

Robinho gekk óvænt í raðir Manchester City á lokadegi félagaskiptagluggans fyrir 32,5 milljónir punda og er dýrasti leikmaður Englands frá upphafi.

Chelsea hafði verið á eftir Robinho í allt sumar og hann virðist hafa haldið að hann hafi farið þangað.

,,Á lokadeginum bauð Chelsea mér vel og ég tók því," sagði Robinho.

,,Þú meinar Manchester City er það ekki? sagði fréttamaðurinn. ,,Já, Manchester, afsakaðu."
Athugasemdir
banner
banner