Heimild: Vefsíða KSÍ
Í dag kl. 16:00 hefst á KR vellinum leikur Íslands og Úkraínu í undankeppni U17 karla en þetta er annar leikur liðsins í riðlinum. Kl. 14:00 í dag leika svo á Fjölnisvelli lið Sviss og Noregs í sömu keppni.
Luka Kostic hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Úkraínu.
Byrjunarlið Íslands (4-3-3):
Markvörður: Aron Elís Árnason, Hægri bakvörður: Torfi Karl Ólafsson, Vinstri bakvörður: Sigurður Egill Lárusson, Miðverðir: Davíð Þór Ásbjörnsson og Brynjar Gauti Guðjónsson, Tengiliðir: Andri Rafn Yeoman, Guðmundur Þórarinsson og Alexander Kostic, Framherjar: Sigurbergur Elísson, Rúrik Andri Þorfinnsson og Zlatko Krickic.
Fyrsti leikur Íslands var gegn Sviss en gestirnir höfðu þar betur með tveimur mörkum gegn einu á Akranesi. Mótherjar Íslendinga í dag, Úkraínumenn, töpuðu sínum fyrsta leik gegn Norðmönnum, 0-4.


