Heimild:  
þri 30.sep 2008 17:16 Alexander Freyr Einarsson,
Stjórnartíð Kinnear hjá Newcastle byrjar skrautlega
Kinnear mætti á æfingu í gær - en enginn annar
Mynd: NordicPhotos
Hrakfarir Newcastle virðast engan endi ætla að taka og því fékk nýráðinn stjóri félagsins, Joe Kinnear, að kynnast þegar hann mætti á sína fyrstu æfingu með félaginu.

Þessi fyrrum stjóri Wimbledon, Luton og Nottingham Forest átti að mæta til vinnu á mánudag og hefjast handa við að snúa slæmu gengi félagsins til hins betra en þegar hann mætti á svæðið var engan leikmann Newcastle að sjá. Hvers vegna? Það var búið að gefa þeim frídag, án hans vitneskju.

Þetta er enn eitt ótrúlegt atvikið sem gerist hjá félaginu og virðist þetta ástand ekki ætla að taka neinn enda. Kinnear lenti sjálfur í einu slíku atviki þegar hann kom á flugvöllinn á Newcastle og enginn frá félaginu var kominn til að sækja hann. Hann þurfti því að punga út fyrir leigubíl til að keyra sig á St. James' Park.

Það kom svo nýlega í ljós að hann mun ekki getað stýrt Newcastle í tveimur fystu leikjum félagsins vegna þess að hann fékk leikbann fyrir fjórum árum hjá Nottingham Fores fyrir að kalla dómarann "Coco The Clown" (Trúðinn Kókó).

Því mun hinn 61 árs gamli Kinnear ekki geta stýrt liðinu frá bekknum fyrr en 20. október. Þess má til gamans geta að samningur hans rennur út 11 dögum síðar, þann 31. október.

Nýjustu fréttirnar