Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 03. október 2008 11:20
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Soccernet 
Agger undir smásjá Real Madrid
Mun Agger yfirgefa Anfield í janúar?
Mun Agger yfirgefa Anfield í janúar?
Mynd: Getty Images
Benítez er sagður vilja halda Agger hjá Liverpool
Benítez er sagður vilja halda Agger hjá Liverpool
Mynd: Getty Images
Spænsku risarnir í Real Madrid hafa viðurkennt að þeir séu á höttunum eftir danska miðverðinum Daniel Agger sem spilar hjá Liverpool. Stefna Spánarmeistararnir á það að næla sér í hann þegar félagsskiptaglugginn opnast að nýju í janúarmánuði.

Þessi 23 ára danski landsliðsmaður hefur átt erfitt með að brjótast inn í byrjunarlið Liverpool eftir að hafa verið lengi fjarverandi vegna fótbrots, en þeir Martin Skrtel og Jamie Carragher spila nú saman í hjarta varnarinnar og hafa gert með góðum árangri.

Benítez er sagður vilja halda Agger á Anfield, en Daninn á tvö ár eftir af samningi sínum. Varaforseti Real Madrid, Jose Angel Sanchez, segir þó að félagið muni mjög líklega koma með tilboð í leikmanninn í janúar.

„Agger er leikmaður sem við höfum haft undir smásjánni í langan tíma og það er líklegt að við bjóðum í hann í janúar. Hann er heimsklassaleikmaður og hann myndi sóma sér vel í liðinu okkar,“ sagði Sanchez við Kunsport.dk.

„Við ætluðum að kaupa Agger í sumar ásamt nokkrum öðrum leikmönnum en allt fjaðrafokið í kringum Robinho tók alla okkar athygli og við þurftum að hafa okkur alla við í því máli. Þess vegna ákváðum við að bíða með að gera tilboð í Agger og aðra leikmenn sem við höfðum í huga.“

„Það sem við þurfum er varnarmaður og framherji, og í augnablikinu er Agger efstur á listanum okkar."


Orðrómar spruttu upp um að Agger og Rafa Benítez ættu í einhverjum erjum innan liðsins en báðir aðilar hafa harðneitað því þó svo að Agger viðurkenni að það sé pirrandi að fá ekkert að spila. Forvitnilegt verður að sjá hvað gerist í janúar, en flestir stuðningsmenn Liverpool myndu þó vilja halda honum hjá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner