Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 09. október 2008 08:43
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sky 
Barcelona ætlar að passa að Messi spili ekki gegn Skotum
Txiki Begiristain íþróttastjóri Barcelona kom til Buenos Aires í gær til að tryggja að Lionel Messi taki ekki þátt í landsleik Argentínu gegn Skotlandi 19. nóvember næstkomandi.

Messi fékk að spila með Argentínu á Ólympíuleikunum gegn því skilyrði að hann myndi ekki taka þátt í neinum vináttuleikjum á tímabilinu.

Gordon Smith framkvæmdastjóri skoska knattspyrnusambandsins hafði lýst yfir því að hann vonaðist til að Messi myndi fá að taka þátt í leiknum sem fer fram á Hampden Park en Begiristain er ákveðinn í að það gerist ekki.

Hann mun hitta argentíska knattspyrnusambandið og skrifa undir skjal sem mun tryggja að Messi verði ekki krafinn um að spila fyrir Argentínu í Skotlandi.

,,Við erum ósveigjanlegir og það ber að verða reglurnar. Barca samþykkir ekki að Messi verði með gegn Skotum og ég mun staðfesta það skriflega," sagði hann. ,,Ég skil afstöðu argentíska knattspyrnusambandsins en við viljum vernda rétt leikmannsins okkar. Messi þarf hvíld og mín áætlun er að tryggja að hann fái hana."
Slapp
banner