Heimild: Sky
Newcastle United hefur tilkynnt það að varaforsetinn Tony Jimenez, hefur yfirgefið félagið. Jimenez var settur varaforseti af eigandanum Mike Ashley eftir að Dennis Wise var ráðinn til félagsins og var hann talinn vera helsta ástæðan fyrir því að Kevin Keegan ákvað að hverfa á brott.
Þar sem Ashley leitast nú eftir því að selja liðið ákvað Jimenez að yfirgefa félagið og leita á önnur mið.
„Newcastle United getur staðfest hér í dag að Tony Jimenez hefur yfirgefið félagið. Tony, sem var ráðinn varaforseti í Janúar, hefur tekið þessa ákvörðun til að geta haldið á önnur mið.“
„Newcastle United þakkar Tony kærlega fyrir alla vinnuna sem hann lagði af mörkum og við óskum honum góðs gengis í framtíðinni.“

