Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 09. október 2008 12:55
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Gerard Lopez á leið til Sheffield United?
Sheffield United er á eftir Gerard Lopez fyrrverandi leikmanni Barcelona en hann er án félags sem stendur.

Gerard, sem er 29 ára miðjumaður, yfirgaf Recreativo Huelva í lok síðustu leiktíðar og hefur verið án félags síðan þá. Hann hefur þó verið að leika fótbolta í Katalóníu til að halda sér í formi.

Talið er að Sheffield United sé jafnvel þegar búið að bjóða Gerard samning.

,,Ég hef ekki ákveðið hvað ég geri en þetta er áhugaverður möguleiki," sagði Gerrard.

,,England er aðlaðandi þegar að kemur að fótbolta en ég þarf að skoða aðra möguleika."

PAOK Salonica frá Grikklandi reyndi að fá Gerard í ágúst en náði ekki að semja við leikmanninn. Þá er einnig talið að einhver félög í MLS deildinni í Bandaríkjunum hafi áhuga á Gerard.
Slapp
banner
banner
banner