Rashford orðaður við Bayern - Trafford í markið hjá Newcastle - Trossard á förum frá meisturunum
banner
   fim 09. október 2008 13:35
Davíð Örn Atlason
Heimild: Sky 
Gallas getur ekki leikið gegn Rúmeníu vegna meiðsla
William Gallas leikmaður Arsenal þarf að draga sig út úr franska landsliðshópnum fyrir leik liðsisn gegn Rúmeníu vegna meiðsla.

Þessi varnarmaður er að glíma við smá tognun í hægra læri.

Raymond Domenech landsliðsþjálfari Frakklands hefur kallað á Jean-Alain Boumsong í staðinn fyrir Gallas.

Þá hefur Jimmy Briand einnig verið kallaður í hópinn vegna þess að Nicolas Anelka leikmaður Chelsea er mjög tæpur.

Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal er að vonast eftir því að Gallas geti leikið með liðinu um næstu helgi gegn Everton.
Slapp
banner
banner
banner
banner