Heimild: Sporting Life
David Bentley leikmaður Tottenham segir að það sé aðhlátursefni að liðið sitji á botni ensku úrvalsdeildarinnar.
Tottenham hafa aðeins hlotið tvö stig úr fyrstu sjö leikjum tímabilsins, en það er versta byrjun liðsins frá árinu 1912.
,,Ég veit að fólk hlær að þeirri staðreynd að við séum á botni deildarinnar á þessu mtímapunkti, en það er undir öllum hjá félaginu komið að binda enda á þetta grín," sagði Bentley.
,,Við erum ekki ánægðir með það sem hefur gerst. Við getum ekki bara falið okkur, við verðum að gera eitthvað í þessu og taka ábyrgð. Við verðum að þroskast sem manneskjur."
,,Við eigum meira en nóg af góðum leikmönnum hjá Tottenham og við verðum bara að koma okkur úr þessu ástandi og ég lofa því að við náum því."


