Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 09. október 2008 15:40
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Quashie á leið til Birmingham á láni
Birmingham City vonast til að geta fengið Nigel Quashie á láni frá West Ham á næstunni.

Þessi þrítugi miðjumaður hefur æft með West Ham í nokkrar vikur til að sanna ágæti sitt eftir 19 mánaða fjarveru vegna meiðsla.

Quashie kom til West Ham árið 2007 en hann hefur mikið verið meiddur og einungis leikið sjö leiki í byrjunarliði síðan hann kom til félagsins.

Alex McLeish ætlar ekki einungis að fá Quashie heldur er hann að skoða möguleika á að fá Souleymane Mamam, 23 ára gamlan miðjumann frá Togo.

Mamam hefur æft með Birmingham að undanförnu en árið 2003 gekk þessi leikmaður til liðs við Manchester United.

Vandamál voru með atvinnuleyfi Mamam og hann var lánaður til Royal Antwerp í Belgíu áður en United ákvað að framlengja ekki samning hans árið 2007.
Slapp
banner
banner
banner