Theódór Sveinjónsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks og 2. flokks kvenna hjá Þrótti til næstu þriggja ára en þetta var staðfest í tilkynningu frá Þrótti í dag.
Hann tekur við af þeim Kristrúnu Lilju Daðadóttur og Þorleifi Óskarssyni sem hafa þjálfað liðið síðastliðin þrjú ár.
Theódór hefur þjálfað mfl og 2. flokk kvenna hjá Fjölni undanfarið ár en liðið lék í Landsbankadeildinni.
Theódór hefur þjálfað bæði töluvert í yngri flokkum og eldri flokkum, mest hjá Val og Fjölni , og nokkuð til jafns drengi og stúlkur.
Hann tilkynnti í lok síðasta mánaðar að hann væri hættur þjálfun Fjölnis og nú er hann kominn til Þróttar.



