Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 09. október 2008 17:16
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sky 
Gerry Francis íhugar tilboð Newcastle
Gerry Francis mun væntanlega taka ákvörðun á næstu dögum um hvort hann taki tilboði Newcastle United um að ganga í þjálfarateymi félagsins. Joe Kinnear sem stýrir Newcastle tímabundið hefur farið þess á leit við Francis að hann taki að sér ákveðið hlutverk í þjálfarateyminu.

,,Ég hef rætt við Joe Kinnear og mér hefur verið gert tilboð," sagði Francis við Sky Sports News. ,,Við munum hittast aftur á næstu dögum og ræða það."

,,Þetta verður þjálfarastarf og verður ekki í fullu starfi. Hver sem er getur séð það að það er heiður að fá að vinna fyrir Newcastle."

Francis er fyrrverandi stjóri QPR og Tottenham. Hann segist þurfa að taka ýmislegt inn í myndina áður en hann tekur ákvörðun um starfið en staðan hjá Newcastle er nokkuð ótrygg þar sem Mike Ashley eigandi félagsins vinnur nú í að selja félagið.

,,Það er óvenjuleg staða þarna, og það eru hlutir sem þarf að vinna úr. ÉG verð að skoða alla stöðuna. Við verðum að ræða málin og sjá hvað hann [Kinnear] vill. Svo er spurning um tímann. Ég veit ekki hversu lengi Joe verður þarna. Ég mun skoða það og ákveða hvað ég geri."
Slapp
banner
banner