Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 09. október 2008 18:59
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: mbl.is 
Evrópukeppni kvenna: Umeå burstaði Val
Kvenaboltinn
Sænska stórliðið Umeå var rétt í þessu að bursta Íslandsmeistarara Vals í Evrópukeppni félagsliða kvenna. Leiknum lauk með 5-1 sigri sænska liðsins en Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði mark Vals.

Næsti leikur Vals er á laugardag klukkan 10:00 gegn ítalska liðinu Bardolino sem lagði Alma frá Khazakhstan 2-1 í dag. Lokaleikur Vals er svo gegn Alma á þriðjudag.

Umeå 5-1 Valur:
1-0 Hanna Ljungberg
2-0 Hanna Ljungberg
3-0 Hanna Ljungberg
3-1 Margrét Lára Viðarsdóttir
4-1 Madelaine Edlund
5-1 Marta

Byrjunarlið Vals 4-5-1:

Guðbjörg Gunnarsdóttir, Sif Atladóttir, Ásta Árnadóttir, Málfríður Erna Sigurðardóttir, Vanja Stefanovic, Pála Marie Einarsdóttir, Katrín Jónsdóttir, Dóra María Lárusdóttir, Sophia Mundy, Margrét Lára Viðarsdóttir, Sif Rykær.
Slapp
banner
banner