Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 10. október 2008 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: BBC 
Jason Roberts í samningaviðræðum við Blackburn
Jason Roberts, framherji Blackburn Rovers í ensku úrvalsdeildinni hefur opinberað það að hann sé í samningaviðræðum við félagið um framlengdan samning.

Roberts, sem er 30 ára gamall landsliðsmaður Grenada kom frá Wigan árið 2006 eftir að hafa átt stórkostlegt tímabil með þeim. Hann fékk þó fá tækifæri undir stjórn Mark Hughes, þáverandi þjálfara Blackburn, en hingað til hefur hann aðeins spilað 22 leiki í úrvalsdeildinni og skorað 5 mörk.

Paul Ince, knattspyrnustjóri Blackburn hefur hins vegar ákveðið að Roberts og Roque Santa Cruz verði aðalframherjar liðsins.

Núverandi samningur Roberts rennur út tímabilið 2009/10, en óvíst er hversu löng framlenging verður á þessum samning.

,,Við erum í miðjum samningaviðræðum og vonandi verður eitthvað úr þeim. Ég er ánægður hérna og vil ég vinna fyrir sæti mínu," sagði Roberts við fréttaveitu BBC.
Slapp
banner
banner