Heimild: AP
Sjö leikmenn mexíkanska þriðju deildar liðsins Raccoons voru handteknir á miðvikudag fyrir fíkniefnadreifingu rétt eftir að flautað var til leiksloka á heimavelli þeirra Aguilas del America.
Yfirvöld í Mexíkó létu handtaka mennina á æfingasvæði liðsins eftir leik þeirra í deildinni fyrir ólöglega fíkniefnadreifingu sagði talsmaður þeirra við lögfræðistofu ríkisins, en hann vildi ekki nafngreina sig vegna afleiðinganna sem gætu átt sér stað vegna opinberun málsins.
Talsmaðurinn sagði enn fremur að hópurinn hefði verið yfirheyrður í gærdag, en sjálfur var hann ekki viss um hvort þetta væru leikmenn liðsins eða starfsmenn í kringum liðið.
Liðið Raccoons er staðsett í Michoacan í Mexíkó, sem er talin ein mesta glæpaborg í landinu þar sem fíkniefnabarónar berjast blóðugu stríði. Í síðasta mánuði varð handsprengja átta manns að bana á þjóðhátíðardegi Mexíkó í þessari umræddu borg.


