Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 10. október 2008 06:00
Davíð Örn Atlason
Heimild: Sporting Life 
Malouda hungraður í titla
Florent Malouda leikmaður Chelsea er með háleit markmið fyrir þetta tímabil, en hann vill vinna deildina og Meistaradeildina með félaginu.

Chelsea lentu í öðru sæti í báðum keppnum á síðasta tímabili og í báðum tilvikum fór titilinn til Manchester United.

Malouda gekk til liðs við Chelsea frá Lyon síðasta sumar og vill ólmur vinna sinn fyrsta bikar með Lundúnarfélaginu.

Malouda hefur byrjað ágætlega á þessu tímabili og hefur skorað tvö mörk. Eitt gegn Bordeaux í Meistaradeild Evrópu og eitt gegn Portsmouth í deildarbikarnum.

,,Það er alltaf gaman að skora, en við vorum að leika í Meistaradeildinni og deildarbikarnum. Núna langar mig að skora í deildinni því ég veit að það er mjög mikilvægt fyrir mig."

,,Ég vann marga deildartila í Frakklandi og ég vil virkilega vinna eitthvað á Englandi. Chelsea voru meistarar tvö ár í röð áður en að ég kom hingað og ég vil vinna deildina á ný."

,,Ég vissi að ef ég kæmi hingað ætti ég góðan séns á góðum árangri í Meistaradeildinni. Ég náði best átta liða úrslitum með Lyon og við komumst í úrslitin í fyrra en töpuðum. En í þetta skiptið getum við gert okkar besta, komist í úrslitin og unnið þau."
Slapp
banner