Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 10. október 2008 09:27
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Skrtel hélt að ferilinn væri á enda
Martin Skrtel leikmaður Liverpool óttaðist að ferilinn væri á enda þegar hann meiddist á hné gegn Manchester City um síðustu helgi.

Krossband í hné Skrtel er ekki slitið eins og óttast var en hann mun verða frá til jóla.

,,Ég hélt að ferilinn væri á enda," sagði Skrtel við Daily Mirror.

,,Sársaukinn var ólýsanlegur, ég man ekki mikið þessa stundina en þetta var hræðilegt. Ég hélt að þetta væri endirinn."

,,Ég hef aldrei á ævi minni fundið eitthvað þessu líkt en ég hélt ró minni og fékk súrefni til að hjálpa mér."

,,Ég var í sjokki um stund en núna er ég að átta mig á þessu, ég finn ennþá fyrir verk en þetta er á batavegi."

,,Ég var ekki langt frá því að slíta krossband, hefði ég gert það hefði ég verið frá í átta mánuði."

,,Núna verða þetta átta vikur ef ég er heppinn, þá get ég byrjað að æfa aftur,"
sagði Skrtel.
Slapp
banner
banner
banner