Heimild: BBC
Bernd Stange landsliðsþjálfari Hvíta-Rússlans ætlar að taka seina ákvörðun um hvort Alexander Hleb leiki gegn Englandi á miðvikudaginn kemur.
Hleb sem er fyrirliði landsliðsinsins og fyrrum leikmaður Arsenal er að jafna sig á ökklameiðslum sem hann hlaut með félagsliði sínu, Barcelona.
,,Þetta verður sein ákvörðun," sagði Stange við BBC sport.
,,Hann mun hitta liðið fyrir í Stuttgart um helgina þar sem við munum undirbúa okkur."
Englendingar mæta Kazakhstan á Wembley á laugardaginn en á meðan ferðast Hvít-Rússar til heimalands Stange, Þýskalands til þess að undirbúa sig fyrir leikinn í Minsk á miðvikudaginn.



