Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 10. október 2008 13:16
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Vefsíða KSÍ 
Landsliðið æfir á keppnisvellinum í kvöld
Yngri leikmenn sigruðu í spurningakeppni í dag
Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Hingað til hefur verið æft á æfingasvæði hjá hollenska liðinu Excelsior með með því félagi lék á sínum tíma, fjölmiðlamaðurinn Heimir Karlsson. Nokkrar myndir af Heimi prýða félagshús hollenska liðsins og vöktu þær mikla lukku hjá hópnum.

Eftir hádegismatinn í dag dró svo til tíðinda en þá fór fram spurningakeppni innan hópsins. Markvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson hélt öruggum hönskum utan um keppnina sem var æsispennandi og fór, að mestu, drengilega fram. Það fór svo að lokum að lið eldri leikmanna bar sigur úr býtum og lið yngri leikmanna varð í öðru sæti.

Lið þjálfara og starfsmanna, er þótti sigurstranglegast fyrir keppnina, varð að láta sér lynda þriðja sætið. Sigur eldra liðsins þótti í heildina sanngjarn en lið þjálfara og starfsmanna fannst ekki vera spurt nægilega út í flokka á þeirra sérsviði. T.a.m. hafði hinn fróðleiksfúsi búningastjóri, Björn Ragnar Gunnarsson, lesið sér mikið til um vefgerðarlist á Balkanskaganum ásamt því að lesa spjaldanna á milli Haustblað Húsfreyjunnar, tímarit Kvenfélagasambands Íslands.

En þrátt fyrir góðan undirbúning og viðleitni þurfti lið búningastjórans að verma botnsætið. Verðlaunin voru óvenjuleg en vöktu mikla lukku sigurvegaranna. Þeir mega leika sér að vild að glænýju yfirvaraskeggi Óðins nuddara en það hefur vakið mikla athygli hópsins svo jaðrar við öfund. Ekki var haft samráð við Óðinn áður en verðlaunin voru tilkynnt.

Búist er við hátt í fjögur hundruð Íslendingum á leikinn og munu stuðningsmenn Íslands hita upp saman fyrir leikinn í miðbæ Rotterdam.

Leikurinn sjálfur hefst svo kl. 18:45 á morgun, laugardag og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Útsendingin sjálf hefst hinsvegar kl. 18:15.
Slapp
banner
banner
banner