Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 10. október 2008 14:05
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: AP 
Sneijder gæti komið inn af bekknum gegn Íslandi
Wesley Sneijder miðjumaður Real Madrid gæti komið inná sem varamaður í landsleik Hollendinga gegn Íslandi á morgun en ef svo fer verður það hans annar alvöru leikur á tímabilinu.

Sneijder er lykilmaður á miðjunni hjá hollenska liðinu og aukaspyrnusérfræðingur liðsins sem getur skorað mark uppúr engu svo ljóst er að ef hann getur verið með mun það muna Hollendinga miklu.

,,Það er möguleiki á að hann verði í hópnum," sagði Bert van Marwijk landsliðsþjálfari Hollendinga í dag. ,,En það má gera ráð fyrir að hann byrji ekki," bætti hann við.

Áður var ljóst að Holland verður án framherjanna Arjen Robben leikmanns Real Madrdi, Robin van Persie leikmanns Arsenal og Jan Vennegoor of Hesselink sem leikur með Celtic og auk þeirra markvarðarins Maarten Stekelenburg og varnarmannana Khalid Boulahrouz og Wilfred Bouma.
Slapp
banner