Magnús Már Einarsson skrifar frá Rotterdam í Hollandi
Heiðar Helguson framherji íslenska landsliðsins á við meiðsli að stríða og óvíst er hvort að hann geti leikið gegn Hollendingum í undankeppni HM annað kvöld.
,,Þetta skýrist á æfingunni í kvöld," sagði Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari á fréttamannafundi í Hollandi í dag.
,,Hann er tæpur og líkurnar á að hann verði með eru minni en meiri en það verður tekin endanlega ákvörðun með hann í kvöld."
Létt var yfir Ólafi á fréttamannafundinum og hann grínaðist með að Pétur Pétursson aðstoðarlandsliðsþjálfari gæti rifjað upp gamla takta og stokkið í fremstu víglínu ef á þyrfti að halda.
,,Ef Heiðar er ekki 100% þá erum við með gamlan senter, reyndar mjög gamlan," sagði Ólafur hlægjandi á fréttamannafundinum og horfði í áttina til Péturs.


