Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 10. október 2008 17:58
Magnús Már Einarsson
Gunnleifur: Er búinn að njóta hverrar einustu mínútu
Magnús Már Einarsson skrifar frá Rotterdam í Hollandi
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
,,Þetta er frábært. Það er langt síðan ég var í landsliðinu síðast og ég er búinn að njóta hverrar einustu mínútu með þessum hóp. Það er bara gleði og ánægja," sagði Gunnleifur Gunnleifsson í samtali við Fótbolta.net í dag en hann er annar tveggja markvarða í landsliðshópi Íslands sem mætir Hollandi á morgun. Þetta er í fyrsta sinn síðan 2001 sem Gunnleifur er valinn í hópinn.

,,Það hefur gengið mjög vel á æfingunum hjá öllum. Við erum vel samstilltir og höfum æft vel og þetta er vel skipulagt. Við erum í góðum gír," sagði Gunnleifur en hálfur mánuður er síðan Landsbankadeildinni lauk þegar Gunnlaugur lék með HK í sigurleik á Breiðablik. Aðspurður sagðist hann tilbúinn að byrja á morgun fái hann kallið.

,,Ég æfði vel eftir að mótið kláraðist og hélt mér í góðu standi. Ég er bara í fínum málum. Ég er heldur betur tilbúinn að standa milli stanganna ef kallið kemur. Ef ég verð valinn í það þá er það bara frábært. Auðvitað verð ég klár í það," sagði hann.

Hollenska liðið er gríðarlega sterkt og þrátt fyrir að nokkuð sé um meiðsli er endalaust af stórstjörnum í leikmannahópi liðsins. Gunnleifur segir enga ástæðu til að slaka á í leiknum á morgun.

,,Þegar allt kemur til alls, þrátt fyrir að Holland sé frábært fótboltalið, þá eru þetta ellefu á móti ellefu á grasinu í 90 mínútur og við munum gera allt sem við getum til að ná úrslitum. Við erum ekkert að fara að slaka á í þessum leik til að spara okkur fyrir Makedóníu. Við höldum að þeir komi til með að setja mikla pressu á okkur í byrjun og reyna að koma inn einu marki snemma. Ef þeim gengur það ekki þá getur allt gerst í þessu."

Leikurinn á morgun fer fram á De Kuip leikvangi Feyenoord í Rotterdam sem tekur yfir 50 þúsund manns í sæti sem er heldur frábrugðið Kópavogsvelli sem Gunnleifur er vanur að spila á.

,,Þetta er enginn Kópavogsvöllur. Þetta er eitthvað sem maður stefnir alltaf á sem fótboltamaður. Að komast í svona og spila á móti bestur fótboltamönnum í heimi á frábærum velli fyrir landið sitt. Það gerist ekki betra svo maður á bara að njóta þess og vera ekki að stressa sig neitt."

Að lokum spurðum við Gunnleif út í stemmninguna í hópnum sem Gunnleifur er að hitta í fyrsta sinn núna enda allt annar hópur og þjálfarateymi síðast þegar hann var í landsliðinu árið 2001.

,,Þetta er ótrúlega skemmtilegt og létt og bara jákvæðni í hópnum. Ég er strax orðinn spurningastjóri liðsins og það var góð spurningakeppni áðan. Það er fullt af léttu og skemmtilegu sem við gerum. Það voru þrjú lið í spurningakeppninni. Starfsfólkið, ungir og gamlir. Gamlir rústuðu þessu náttúrulega. Starfsfólkið lenti í síðasta sæti."

,,Þeir voru ágætir í þessu Guðmundur Steinarsson og Hermann Hreiðarssson og Eiður Smári. Það var mest spurt út í fótbolta en líka eitthvað almenns eðlis, hljómsveitir og kvikmyndir og slíkt. Fyrst voru hraðaspurningar, svo bjölluspurningar þar sem spurt var út í strákana í liðinu. Hvað Eiður fékk í afmælisgjöf frá konunni og svona."

Slapp
banner
banner